Willum Andersen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 13:28 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 13:28 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Willum J. Andersen fæddist 30. september 1910 og lést 17. júlí 1988. Eiginkona hans hét Guðrún Ágústa Ágústsdóttir. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 6 (Kiðjaberg) og 8, og á Heiðarvegi 55.

Willum var formaður með mótorbátinn Skógafoss og Öðling VE-202.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Willum:

Villúm skýr á Skógafoss
skafnar drafnir klýfur.
Margan hlýtur kylju koss
kappinn sjó við stífur.

Óskar Kárason samdi seinna aðra vísu um hann:

Andersen Villum venur
víðinn á Metu fríða.
Drengurinn fiski fenginn
finnur í sóknum stinnur,
sjúps þó að dætur hjúpi
duggu í brima muggu.
Glettinn er grérinn nettur,
greindur við sjó og reyndur.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.