Westy Petræus

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Westy Petreus)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Westy Petreus kaupmaður og eigandi Garðsverzlunar fæddist í júní 1767 í Lillemölle í Notmark í Danmörku og lést 16. september 1828 í Kaupmannahöfn.
Foreldrar hans voru Henrik Petræus, f. 17. júlí 1831 í Sudeerlugum, d. 17. maí 1782 í Sönderborg og kona hans Cathrine Petri, f. 1741, d. 10. október 1764 í Grundestrup.

Hann og Peter Ludvig Svane keyptu Garðsverzlun af nefnd þeirri, sem hafði með höndum sölu konungsverzlunarinnar. Hafði Hans Klog kaupmaður komist í þrot og nefndin tekið verzlunina af honum 1798.
Þeir Svane skrifuðu undir skuldabréf fyrir kaupunum 30. ágúst 1799. Svane veitti Eyjaverzluninni forstöðu í nokkur ár og hafði umboðið. Hafði hann ábúð á umboðsjörðinni Kornhól og einnig hafði verzlunin ábúðarréttinn á Miðhúsum. Hann var búsettur í Kaupmannahöfn, en staddur í Reykjavík á mt 1801. Hann gekk úr félaginu 1803 og afsal fyrir hlut Svane fékk Petreus 9. ágúst 1805.
Verzlunin gekk illa. Vestmannaeyjar misstu réttindi kaupstaða 1807 og urðu þær einskonar útibú frá verzlun Petreusar í Reykjavík, en þar rak hann stórverzlun.
Westy Petreus var talinn viðsjárverður nokkuð. Hann þóttist mikill vinur Jörundar hundadagakonungs og var skipaður yfirmaður ensku verzlunarinnar, en ef út af bar þóttist hann hvergi hafa komið nærri og kenndi verzlunarstjórum sínum um. Þannig fór um Grím Pálsson faktor hans, sem síðar varð prestur og prófastur. Hann var kærður fyrir verzlunaránauð, þó að hann færi eftir fyrirmælum Petreus um verðlag og annað, er að rekstrinum laut.
Aðeins ein verzlun var í Eyjum frá því að verzlunin var gefin frjáls 1788 og sízt betri en á einokunartímunum. Var oft mikill hörgull á öðrum vörum en tóbaki og brennivíni. Varð af þambinu mikill ófriður, svo að friðsamir kaupmenn treystust vart til að leita til Eyja í verzlunarerindum, þó að þeim væri það frjálst. Er þetta staðfest í bréfi stiftamtmanns til sýslumanns 19. maí 1790.
Samtök voru með kaupmönnum alla 19. öldina og hliðruðu þeir til hver fyrir öðrum í verzlunarháttum sínum. Sama gilti, er verzlanirnar voru orðnar þrjár. Var alþýða manna sem ánauðugir þrælar kaupmanna. Var algengt, að menn yrðu að veðsetja kaupmanni afla sinn fyrirfram til að fá vöruúttekt.
Westy Petreus rak síðan verzlunina til dauðadags 1829. Kom þá Sören Jakobsen til skjalanna.

I. Barnsmóðir hans var Halldóra Þorvaldsdóttir vinnukona í Keflavík, f. 1767.
Barn þeirra:
1. Valgerður Petræus, f. 18. nóvember 1791 í Útskálasókn, Gull., d. þar 11. desember 1791.

II. Kona hans, (18. janúar 1799), var Cathrine Margrethe Hölter húsfreyja í Reykjavík, f. í mars 1776 (skírð 4. mars), d. 10. nóvember 1831. Foreldrar hennar voru Lauritz Johan Peter Hölter beykir í Stykkishólmi og á Ísafirði, f. 1746 í Kaupmannahöfn, d. 25. september 1835 í Reykjavík, og kona hans Guðrún Þorbergsdóttir húsfreyja, f. 1754 á Eyri við Skutulsfjörð, d. 1. september 1825 í Melrakkaey við Grundarfjörð, Snæf.
Börn þeirra:
2. Didericke Margrethe Petræus í Reykjavík og Kristjánshöfn í Danmörku, f. 8. desember 1799 í Kaupmannahöfn, d. 1850. Maður hennar Jörgen Johannes Bech.
3. Peter Henrik Westy Petræus , f. 4. júní 1801, d. 10. september 1801.
4. Henriette Sophie Westine Petræus í Danmörku, f. 19. júní 1802, ógift, barnlaus.
5. Martin Westy Petræus lögfræðingur, borgarstjóri, bæjarfógeti í Næstved, f. 18. september 1806 í Reykjavík. Kona hans Elise Margrethe Christensen húsfreyja, f. um 1806.
6. Peter Christian Petræus, faktor í Stofan í Hafnarfirði, kaupmaður í Vordingborg, f. 16. nóvember 1811, d. 20. júní 1864 í Vordingborg. Kona hans Ingibjörg Níelsdóttir húsfreyja, f. 7. september 1807 í Beykishúsi í Hafnarfirði.
7. Emil Bernhard Petræus, f. 1815 í Danmörku.

III. Barnsmóðir var Ragnheiður Guðmundsdóttir húsfreyja í Árnessókn í Strand., f. 1793 í Otradalssókn í Barð., d. 25. nóvember 1860 u. Eyjafjöllum.
Barn þeirra:
7. Soffía Petrea Petræa (Soffía Petra Pétursdóttir) húsfreyja í Keflavík og í Minni-Njarðvík, f. 23. desember 1810 í Reykjavík, d. 23. desember 1860. Maður hennar Magnús Hallgrímsson bóndi frá Görðum á Akranesi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.