Vilmundur Friðriksson (Hjarðarholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. september 2021 kl. 11:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. september 2021 kl. 11:37 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Vilmundur
Fjölskyldan frá Hjarðarholti. Aftari röð frá v. Jóhann Vilmundarson, Kristinn Vilmundarson, Karl Vilmundarson, Skarphéðinn Vilmundarson, Ingibergur Vilmundarson. Fremri röð frá v. Lilja Vilmundardóttir, Laufey Vilmundardóttir. Þuríður Pálína Pálsdóttir móðir þeirra, Unnur Vilmundardóttir og Fjóla Vilmundardóttir. Óþekktur ljósmyndari myndin er í eigu Sigurðar Kristinssonar Vilmundarsonar

Vilmundur Friðriksson, Hjarðarholti, fæddist 19. september 1883 á Kálfsstöðum í V-Landeyjum og lést 20. maí 1923. Vilmundur fór til sjóróðra í Vestmannaeyjum og árið 1908 kaupir hann Víking með fleiri mönnum og hafði formennsku á honum til ársins 1911 en þá kaupir hann Gideon og er formaður á honum til vertíðarloka ársins 1914. Síðar er Vilmundur með ýmsa báta til ársins 1923 en hann lést það ár.

Myndir


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.