Vilmunda Einarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. mars 2016 kl. 12:02 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. mars 2016 kl. 12:02 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Vilmunda Einarsdóttir frá Sandprýði, húsfreyja fæddist 10. október 1908 og lést 23. júní 1988.
Foreldrar hennar voru Einar Halldórsson útgerðarmaður og sjómaður í Sandprýði, f. 25. október 1866, drukknaði í Höfninni 10. janúar 1912, og kona hans Helga Guðmundsdóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 24. júní 1863, d. 18. mars 1931.

Börn Helgu og fyrri manns hennar Gísla Gíslasonar voru:
1. Halldóra Gísladóttir vinnukona, f. 12. desember 1885, d. 10. júní 1965.
2. Gíslína Gísladóttir, f. 12. desember 1885, d. 12. maí 1891.
3. Jón Gíslason útgerðarmaður á Ármótum (Ármóti), f. 4. janúar 1888 á Uppsölum, d. 20. febrúar 1970.
4. Jórunn Gísladóttir húsfreyja, f. 27. júní 1889, d. 3. nóvember 1961.
5. Sigríður Gíslína Gísladóttir, f. 13. ágúst 1891, d. 18. janúar 1892.
6. Halla Sigríður Gísladóttir, f. 29. desember 1892 í Nöjsomhed, d. 17. mars 1893.
7. Guðmundur Gíslason, f. 16. júní 1894, d. 12. nóvember 1894.
8. Karólína Vilborg Gísladóttir, f. 5. janúar 1896 í Nöjsomhed, d. 25. júlí 1896.

Barnsfaðir Helgu var Einar Jónsson sjómaður frá Káragerði í V-Landeyjum, f. 12. júní 1863, d. 27. nóvember 1941.
Barn þeirra var
9. Gíslína Sigríður Helga Einarsdóttir húsfreyja í Stafholti, f. 18. ágúst 1900, d. 12. ágúst 1967.

Börn Helgu og Einars Halldórssonar útgerðarmanns og sjómanns í Sandprýði voru:
10. Gunnar Ármann Einarsson vélstjóri, f. 31. júlí 1902, fórst með Minervu VE-241 24. janúar 1927.
11. Vilmunda Einarsdóttir húsfreyja, f. 10. október 1908, d. 23. júní 1988.
Sonur Einars og stjúpsonur Helgu var
12. Ólafur Einarsson bátsformaður á Búðarfelli, f. 10. janúar 1897, d. 27. janúar 1928.
Fósturbarn Helgu, sonur Helgu Gísladóttur hálfsystur hennar var
13. Ketill Eyjólfsson bifreiðastjóri, útgerðarmaður, síðar framkvæmdastjóri og starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar, f. 20. apríl 1911, d. 11. október 2006.

Vilmunda var með foreldrum sínum, systkinum og hálfsystkinum í Sandprýði 1910.
Hún missti föður sinn þriggja ára gömul, var með móður sinni og fjölskyldu í Sandprýði 1920, var hjá Jóni bróður sínum, móður og mörgum systkinum á Ármótum (Ármóti) 1924, með móður sinni hjá Jóni bróður sínum þar 1930, en móðir hennar lést 1931.
Hún var ráðskona hjá Jóni 1940.
1945 voru þau Hinrik þar með son sinn Gunnar Ármann, svo og var þar Markús sonur Jóns með sína fjölskyldu, og Jón með Þórarinn Gísla son sinn og Halldóru systur sína.
Þau Hinrik fluttust í hús sitt á Skólavegi 15 og voru þar 1949 með börnin Gunnar Ármann og Helgu.
Vilmunda bjó síðast í Kópavogi.
Hún lést 1988.

Maður Vilmundu, (31. desember 1943), var Hinrik Gíslason formaður, vélstjóri, f. 4. júní 1909, d. 16. mars 1986.
Börn þeirra:
1. Gunnar Ármann Hinriksson rafvirki, f. 23. júlí 1943 á Ármótum (Ármóti).
2. Helga Hinriksdóttir ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur, deildarstjóri, f. 12. ágúst 1946 á Ármótum (Ármóti).
3. Guðrún Hinriksdóttir sjúkraliði, f. 12. október 1953.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.