Villa María Einarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. janúar 2018 kl. 20:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. janúar 2018 kl. 20:06 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Villa María Einarsdóttir húsfreyja, snyrtifræðingur, heildsali fæddist 12. desember 1928 í Stóra-Hvammi.
Foreldrar hennar voru Einar Magnússon vélsmíðameistari í Stóra-Hvammi, f. 31. júlí 1892 í Hvammi u. Eyjafjöllum, d. 25. ágúst 1932, og kona hans María Vilborg Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 26. júní 1897 í Knobsborg á Seltjarnarnesi, d. 18. febrúar 1974.

Börn Einars og Maríu Vilborgar voru:
1. Sigríður Margrét Einarsdóttir húsfreyja, f. 20. janúar 1923, d. 9. febrúar 2003.
2. Björg Einarsdóttir húsfreyja í Bandaríkjunum, síðar í Reykjavík, f. 16. apríl 1924, d. 30. júlí 1991.
3. Magnús Einarsson vélvirki, verkstjóri í Virginíu, f. 30. nóvember 1925, d. 13. janúar 1998.
4. Þuríður Einarsdóttir Ólafson húsfreyja, f. 9. október 1927, d. 12. júní 1962.
5. Villa María Einarsdóttir húsfreyja, snyrtifræðingur, f. 12. desember 1928.
6. Einar Einarsson vélvirki, vélstjóri, f. 2. september 1930, d. 29. júlí 2010.

Faðir Villu Maríu lést, er hún var á fjórða ári aldurs síns. Móðir hennar flutti með börnin til Reykjavíkur 1938 og þar ólst Villa María upp. Hún rak heildverslun með snyrtivörur og fleira með Ólafi.

I. Maður Villu Maríu, (12. janúar 1952), var Ólafur Kjartansson rakarameistari, heildsali, f. 25. júlí 1928, d. 1. janúar 2018.
Börn þeirra:
1. Kjartan Ólafsson viðskiptafræðingur, f. 27. mars 1953. Kona hans er Anna Guðmundsdóttir.
2. Einar Ólafsson lyfjafræðingur, f. 29. febrúar 1956. Kona hans er Þorgerður Ester Sigurðardóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.