Vilhjálmur Árnason (Burstafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. september 2017 kl. 17:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. september 2017 kl. 17:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Vilhjálmur Árnason (Burstafelli)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Vilhjálmur Árnason.

Vilhjálmur Árnason verzlunarmaður og framkvæmdastjóri frá Burstafelli fæddist 19. febrúar 1921 og lézt 19. febrúar 1993.
Foreldrar hans voru Árni Oddsson, f. 1888 og k.h. Sigurbjörg Sigurðardóttir, f. 1883.

Vilhjálmur lauk prófi frá Gagnfræðaskólanum. Hugur hans stóð til framhaldsnáms, en vegna heimilisaðstæðna varð því ekki við komið. Var hann áhugasamur og liðtækur knattspyrnumaður í Þór.

Vilhjálmur var verzlunarmaður, m. a. í Vöruhúsinu og Kaupfélagi Vestmannaeyja. Þau María keyptu Fatahreinsunina StraumSkólavegi 4 árið 1958. Ráku þau þar fatahreinsun og þvottaþjónustu, m.a. fyrir Vestmannaeyjabæ. Eftir gos keyptu þau og ráku þvottahús á Flötunum til ársins 1988, er þau Vilhjálmur urðu að hætta rekstrinum vegna veikinda hans. Hann vann síðan við verndaðan vinnustað í Eyjum.
Kona hans var María Gísladóttir, f. 1923.
Börn þeirra:

  1. Óli Árni, f. 1941,
  2. Þór Ísfeld, 1945,
  3. Sæmundur, f. 1948,
  4. Sigurbjörg, f. 1956,
  5. Vilhjálmur, f. 1963.

Myndir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.