Vilhelmine Juliette Möller

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júní 2015 kl. 13:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júní 2015 kl. 13:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Vilhelmine Juliette Möller“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Vilhelmine Juliette Möller fæddist í Juliushaab 5. maí 1852.
Foreldrar hennar voru Carl Ludvig Möller verslunarstjóri í Juliushaab, f. 1816, d. 7. júlí 1861, og kona hans Ingibjörg Þorvarðsdóttir húsfreyja, f. 28. október 1821, d. 7. september 1899.

Systkini Vilhelmine Juliette í Eyjum voru:
1. Marie Sophie Frederikke Möller, f. 28. október 1850.
2. Jóhanne Amalie Christiane Möller, f. 20. janúar 1850, d. 18. apríl 1914.
3. Hansína Möller húsfreyja, f. 28. júní 1854, d. 20. ágúst 1940.
4. Hans Peter Vilhelm Möller vinnumaður, f. 30. júní 1856, d. 21. desember 1877.
5. Carl Axel Möller símstjóri, f. 8. febrúar 1859, d. 14. nóvember 1937.
6. Haraldur Lúðvík Möller trésmíðameistari, kaupmaður, f. 14. apríl 1861, d. 21. september 1931.

Vilhelmine var með foreldrum sínum meðan þau lifðu bæði.
Faðir hennar lést, er hún var 9 ára. Hún var með móður sinni í Juliushaab í lok árs 1861, í Túni 1862-1866, var tökubarn í Juliushaab 1867 og 1868 hjá Gísla og Maríu Bjarnasen, var vinnustúlka hjá þeim 1869, þjónustustúlka í Garðinum hjá þeim 1870, vinnukona þar 1871.
Hún fluttist frá Godthaab til Eyjafjalla 1872, kom til Eyjafjalla 1874, var „í kynnisferð“ í Eystri-Skógum, Rang. við skráningu 1880.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.