Vilborg Hákonardóttir (Hákonarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Vilborg Hákonardóttir frá Hákonarhúsi við Kirkjuveg 88, húsfreyja fæddist 1. júní 1917 í Merkinesi í Höfnum, Gull. og lést 3. apríl 1995.
Foreldrar hennar voru Hákon Kristjánsson sjómaður, verkamaður, húsvörður í Barnaskólanum, f. 9. febrúar 1889, d. 21. apríl 1970, og kona hans Guðrún Vilhelmína Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 5. ágúst 1884, d. 1. júní 1968.

Börn Vilhelmínu og Hákonar:
1. Guðrún Friðrika Ásmundína Hákonardóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1911 í Merkinesi í Höfnum, síðast í Reykjavík, d. 27. júlí 1984. Maður hennar Marinó Jóhannesson.
2. Guðmundur Kristján Hákonarson húsasmiður í Eyjum, f. 20. september 1915 í Merkinesi í Höfnum, d. 4. febrúar 2006. Kona hans Halldóra Kristín Björnsdóttir.
3. Vilborg Hákonardóttir húsfreyja í Eyjum, f. 1. júní 1917 í Merkinesi í Höfnum, d. 3. apríl 1995. Maður hennar Ragnar Axel Helgason.

Vilborg var með foreldrum sínum, flutti með þeim til Eyja 1922.
Þau Ragnar giftu sig 1941, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Brimhólabraut 11.
Ragnar lést í janúar 1995 og Vilborg í apríl 1995.

I. Maður Vilborgar, (1. júní 1941), var Ragnar Axel Helgason sjómaður, lögreglumaður, f. 20. febrúar 1918 á Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd, d. 27. janúar 1995.
Börn þeirra:
1. Friðrik Helgi Ragnarsson vörubifreiðastjóri, f. 12. febrúar 1941 á Kirkjuvegi 88. Kona hans Erla Víglundsdóttir, látin.
2. Anna Birna Ragnarsdóttir sjúkraliði, f. 18. september 1948 á Brimhólabraut 11. Barnsfeður hennar Gunnar Hilmar Tómasson, Paul Uzureau og Sigurður Magnússon.
3. Hafsteinn Ragnarsson, f. 1. desember 1952 á Brimhólabraut 11. Kona hans Steinunn Hjálmarsdóttir.
4. Ómar Ragnarsson, f. 14. júlí 1958, d. 22. nóvember 2000.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.