Vigdís Þorbjörnsdóttir (Svaðkoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2015 kl. 15:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2015 kl. 15:17 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Vigdís Þorbjörnsdóttir húsfreyja í Svaðkoti fæddist 9. nóvember 1800 í Holtssókn, Rang. og lést 23. febrúar 1860 í Eyjum.
Faðir hennar var Þorbjörn bóndi í Ásólfsskála þar 1801, f. 1772, Árnason, f. (1725), Þorbjörnssonar.
Móðir Vigdísar og kona Þorbjörns var Vilborg húsfreyja, f. 1771, Tómasdóttir.

Vigdís var vinnukona á Kirkjubæ 3 á Rangárvöllum 1816.
Hún fluttist til Eyja 1817, var ekkja á Ofanleiti (líklega hjáleigunni Svaðkoti) 1835, húsfreyja í Svaðkoti, Vestmannaeyjum 1845-1855.

Vigdís var systir
1. Eyjólfs Þorbjörnssonar bónda og hreppstjóra á Búastöðum vestri,
2. Árna Þorbjörnssonar bónda á Kirkjubæ og móðursystir
Systurbörn hennar í Eyjum voru
1. Vilborgar Þórðardóttir húsfreyja í Elínarhúsi,
2. Geirdís Þórðardóttir húsfreyja í París.
3. Þorbjörn Þórðarson vinnumaður, sjómaður frá Svaðkoti og
4. Sveinn Þórðarson tómthúsmaður í Brandshúsi.

Vigdís var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (1820), var Jón Þorkelsson bóndi í Svaðkoti, f. í nóvember 1795 í Danska Garði, d. 5. mars 1834, drukknaði.
Börn Vigdísar og Jóns hér:
1. Sveinn Jónsson, f. 16. júní 1821, d. 22. júní 1821 úr ginklofa.
2. Jón Jónsson, f. 4. september 1822, d. 13. september 1822 „af sinadráttarveiki“, mun vera ginklofi.
3. Vilborg Jónsdóttir, f. 27. október 1823, d. 29. október 1878 á Vilborgarstöðum.
4. Þorbjörn Jónsson, f. 11. desember 1824, d. 19. desember 1824 úr ginklofa.
5. Guðríður Jónsdóttir húsfreyja á Búastöðum, f. 6. ágúst 1829, d. 15. ágúst 1867, kona Sigurðar Torfasonar hreppstjóra.
6. Geirdís Jónsdóttir, f. 1. ágúst 1832, d. 7. ágúst 1832 úr ginklofa.
7. Þuríður Jónsdóttir, f. 29. apríl 1834, d. 6. maí 1834 úr ginklofa.

II. Síðari maður Vigdísar, (7. nóvember 1835), var Árni Eiríksson bóndi og sjómaður frá Fossi í Mýrdal, f. 10. maí 1798, d. 20. október 1873.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.