Valgerður Ólöf Magnúsdóttir (ljósmóðir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. október 2019 kl. 21:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. október 2019 kl. 21:27 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Ólöf Magnúsdóttir ljósmóðir fæddist í Eyjum 23. marz 1953.
Foreldrar hennar voru Magnús Þórður Ágústsson bifreiðastjóri frá Aðalbóli, f. 7. maí 1921, d. 17. júlí 1986 og k.h. Guðrún Ólafsdóttir ljósmóðir, f. 1920.

Lífsferill

Valgerður lauk prófi í hagnýtum verzlunar- og skrifstofustörfum við Verzlunarskóla Íslands 1971, var skiptinemi í Bandaríkjunum 1971-72. Hún lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 30. september 1975.
Ljósmóðir var hún í Eyjum frá 1. janúar 1976 fram í maí 1979. Hún stundaði verzlunarstörf 1979-91, var í framhaldsskólanum 1990-91, en hefur unnið við hjúkrun við Sjúkrahúsið frá 1991.

Maki (7. maí 1977): Haraldur netagerðarmeistari, f. 11. september 1947, Júlíusar netagerðarmanns Hallgrímssonar og konu Júlíusar, Þóru Haraldsdóttur.

Börn þeirra Haraldar:

  1. Magnús Hlynur, f. 23. sept. 1975.
  2. Guðrún, f. 28. maí 1979.
  3. Berglind Þóra, f. 1992.

Heimildir

  • Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Guðni Jónsson: Bergsætt . Reykjavík, I. bls 433.
  • Ljósmæður á Íslandi.. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
  • Valgerður Ólöf Magnúsdóttir, viðtal.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.