Valgerður Sigurðardóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. febrúar 2014 kl. 16:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. febrúar 2014 kl. 16:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Valgerður Sigurðardóttir''' húsfreyja í Háagarði fæddist 31. ágúst 1822 og lést 3. febrúar 1894.<br> Foreldrar hennar voru [[Björg Brynjólfsdóttir ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Sigurðardóttir húsfreyja í Háagarði fæddist 31. ágúst 1822 og lést 3. febrúar 1894.
Foreldrar hennar voru Björg Brynjólfsdóttir húsfreyja í Háagarði, f. 10. mars 1788, d. 6. nóvember 1853, og fyrri maður hennar Sigurður Magnússon bóndi, f. 28,. mars 1794, d. 10. febrúar 1833.

Valgerður var með móður sinni á Vilborgarstöðum 1835, (þ.e. í Háagarði. Hann var á Vilborgarstaðajörðinni), var vinnukona á Ofanleiti 1840 og 1845. Hún var húsfreyja í Götu 1850 með Sveini og barninu Sigríði.
Við manntal 1855 voru þau komin að Háagarði með börnin Jósef 8 ára, Björgu 4 ára. Sigurður hafði fæðst í janúar og látist innan viku. Sigríður var í fóstri á Búastöðum.
Sigurður annar hafði fæðst 1857 og látist innan viku og Brynjólfur fæddist 1858 og lést innan viku.
Sveinn fórst 1859, og 1860 var Valgerður ekkja, húsfreyja í Háagarði með börnin Jósef 13 ára og Ragnheiði 5 ára. Sigríður var í fóstri á Búastöðum og Björg var í fóstri í París.
Valgerður var húskona í Háagarði 1870 með Ragnheiði 14 ára hjá sér.
Jósef hafði farist með Blíð 1869. Björg var 18 ára vinnukona í Elínarhúsi og Sigríður var 21 árs niðursetningur í Norðurgarði.
Valgerður var vinnukona í Stakkagerði 1880, en 1890 var hún komin til Ragnheiðar dóttur sinnar og Sigmundar Finnssonar í Uppsölum.
Hún lést 1894.

Maður Valgerðar, (15. maí 1848), var Sveinn Sveinsson sjávarbóndi í Háagarði, f. 26. desember 1825, drukknaði 30. mars 1859.
Börn þeirra hér:
1. Sigríður Sveinsdóttir, f. 18. júní 1849, d. 2. september 1925.
2. Jósef Sveinsson, f. 9. júní 1848, drukknaði 26. febrúar 1869 í Útilegunni miklu.
3. Björg Sveinsdóttir, f. 11. mars 1852, fór til Vesturheims 1902.
4. Sigurður Sveinsson, f. 5. janúar 1855, d. 11. janúar 1855 úr ginklofa.
5. Ragnheiður Sveinsdóttir húsfreyja í Uppsölum, f. 10. ágúst 1856, d. 27. febrúar 1916.
6. Sigurður Sveinsson, f. 6. október 1857, d. 12. október 1857 úr ginklofa.
7. Brynjólfur Sveinsson, f. 18. október 1858, d. 24. október 1858 úr ginklofa.


Heimildir