Valgerður Kristjánsdóttir (Miðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. ágúst 2015 kl. 19:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. ágúst 2015 kl. 19:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Kristjánsdóttir vinnukona á Miðhúsum fæddist 9. júlí 1800 í Tungu í Fljótshlíð og lést 30. júlí 1843.
Foreldrar hennar voru Kristján Hansson bóndi í Tungu, f. 1768, d. 25. ágúst 1825, og kona hans Sæunn Snorradóttir húsfreyja, f. 1767, d. 9. september 1830.

Valgerður var með foreldrum sínum í bernsku, var vinnukona í Króki í Útskálasókn á Reykjanesi 1816, í Litlu-Tungu í Holtum 1835, á Torfastöðum í Fljótshlíð 1840.
Hún fluttist að Miðhúsum 1842 og var þar vinnukona við andlát 1843.
Valgerður var ógift og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.