Valgerður Björnsdóttir (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. desember 2015 kl. 20:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. desember 2015 kl. 20:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Björnsdóttir húsfreyja í Brekkuhúsi og Stakkagerði, síðan í Hallgeirseyjarhjáleigu í A-Landeyjum, fæddist á Brekkum á Rangárvöllum, var skírð 15. apríl 1776 og lést 11. apríl 1868.
Foreldrar hennar voru Björn Ólafsson bóndi á Brekkum, skírður 14. júlí 1748, d. 27. ágúst 1832, og kona hans Helga Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1736, d. 19. ágúst 1819.

Valgerður var ógift með foreldrum sínum 1801.
Hún giftist Eyvindi 1812. Þau bjuggu á Miðhúsum í Hvolhreppi 1814-1815.
Þau Eyvindur voru komin að Brekkuhúsi 1815 og voru þar 1824, bjuggu í Stakkagerði 1825 og 1827, en voru komin að Hallgeirseyjarhjáleigu 1829. Þar bjuggu þau til 1845, er þau slitu samvistir, og hún flutti að Vatnsdal í Fljótshlíð og síðar að Kotvelli.
Valgerður lést 1868.

I. Maður Valgerðar, (11. nóvember 1812, slitu samvistir), var Eyvindur Jónsson bóndi, f. 1787, d. 7. apríl 1849.
Börn þeirra hér:
1. Valgerður Eyvindsdóttir húsfreyja, f. 17. september 1813, d. 15. júní 1872. Maður hennar var Jón Guðmundsson (hafði viðurnefnið Íri), bóndi, f. 1811, drukknaði 1870.
2. Björn Eyvindsson, f. 22. ágúst 1814, þríburi, d. líklega ungur.
3. Þorsteinn Eyvindsson, f. 22. ágúst 1814, þríburi, d. í sama mánuði.
4. Valgerður Eyvindsdóttir, f. 22. ágúst 1814, þríburi, dó líklega ung.
5. Guðrún Eyvindsdóttir, f. 11. nóvember 1815, d. 2. apríl 1888. Maður hennar var Eyjólfur Hinriksson bóndi, f. 1811, d. 1858.
6. Guðmundur Eyvindsson, f. 25. febrúar 1819, d. 7. júlí 1821 úr „hálsbólgu“.
7. Margrét Eyvindsdóttir, f. 30. júlí 1820, d. 8. ágúst 1820 úr ginklofa.
8. Guðmundur Eyvindsson, f. 19. nóvember 1822, d. 27. nóvember 1822 úr „sinadráttarsýki“, (líklega stífkrampi, ginklofi).


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.