„Valgeir Sigurjónsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Valgeir Sigurjónsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 43: Lína 43:
*Morgunblaðið 8. júní 1999. Minning.
*Morgunblaðið 8. júní 1999. Minning.
*Prestþjónustubækur.  
*Prestþjónustubækur.  
*Vélstjóra- og vélfræðingatal. Ritstjórar: Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Þjóðsaga 1996 og 1997. }}
*Múraratal og steinsmiða. 2. útgáfa, aukin. Þorsteinn Jónsson, Brynjólfur Ámundason. Þjóðsaga 1993. }}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Sjómenn]]

Útgáfa síðunnar 7. nóvember 2019 kl. 17:40

Einar Valgeir Sigurjónsson múrarameistari í Hafnarfirði fæddist 4. júlí 1916 á Kirkjubæ og lést 31. maí 1999.
Foreldrar hans voru Sigurjón Pálsson frá Hansabæ í Reykjavík, sjómaður, verkamaður, bílamálari, f. 21. júní 1887, d. 4. júní 1968, og fyrri kona hans Guðný Kristjana Einarsdóttir frá Krossi í A-Landeyjum, húsfreyja, f. 18. nóvember 1892, d. 9. október 1964.

Börn Sigurjóns og Kristjönu, fyrri konu hans:
1. Björgvin Sigurjónsson sjómaður, vélstjóri, vélsmíðameistari, f. 21. október 1911 í Norður-Búðarhólshjáleigu í A-Landeyjum, d. 18. júlí 1992.
2. Guðmunda Margrét Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 13. júní 1913 í Skuld, fluttist til Reykjavíkur 1930, d. 19. desember 1934.
3. Einar Valgeir Sigurjónsson múrari í Hafnarfirði, f. 4. júlí 1916 á Kirkjubæ, fóstraður hjá Valgerði og Einari móðurforeldrum sínum í A-Landeyjum, d. 31. maí 1999.

Börn Sigurjóns og Áslaugar, síðari konu hans:
4. Rósa Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, f. 14. desember 1927, d. 28. febrúar 2007. Maður hennar var Valdimar Kristinn Valdimarsson.
5. Guðmundur Sigurjónsson, dó ungbarn.
6. Hansína Sigurjónsdóttir, f. 23. febrúar 1931. Maður hennar Skúli Skúlason.
7. Guðfinna Pálína Ólöf Sigurjónsdóttir, f. 3. ágúst 1933, d. 24. maí 2016. Maður hennar Halldór Ársælsson.
8. Guðný Sigurjónsdóttir, f. 19. júní 1936, d. 19. janúar 2014. Maður hennar Jakob Cecil Júlíusson
9. Margrét Sigurjónsdóttir, f. 7. mars 1937, óg.
10. Svavar Sigurjónsson, f. 26. ágúst 1938. Kona hans var Sigurbjörg Eiríksdóttir, látin.

Börn Guðnýjar Kristjönu og Haraldar Sigurðssonar, síðari manns hennar:
1. Haraldur Ágúst Haraldsson járnsmiður, f. 27. október 1919, d. 16. október 1984.
2. Friðrik Haraldsson bakarameistari, f. 9. ágúst 1922, d. 21. mars 2014.
3. Rúrik Theodór Haraldsson leikari, f. 14. janúar 1926, d. 23. janúar 2003.
4. Ása Haraldsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 12. júlí 1928, d. 4. nóvember 2014.

Valgeir var með foreldrum sínum í frumbernsku, á Kirkjubæ 1916, í París 1918, en var sendur í fóstur til móðurforeldra sinna í A-Landeyjum 1919 og ólst þar upp.
Valgeir var sjómaður í Eyjum 1940, bjó á Skjaldbreið 1940, þar með Hansínu Kristínu sambýliskonu sinni. Með þeim var Bergþóra Sonja Dagbjartsdóttir, sem varð kjördóttir Valgeirs og þar fæddist Valgerður 1941.
Valgeir vann við múrverk í Hafnarfirði, tók sveinspróf 1975 og stundaði iðnina.
Þau Hansína giftu sig, eignuðust þrjú börn og Hansína átti eitt og varð það kjörbarn Valgeirs. Þau bjuggu lengst í Hafnarfirði, á Öldugötu 29, húsi, sem þau byggðu.
Hansína lést 1989. Einar Valgeir bjó með Sigríði á Jökulgrunni í Reykjavík og síðan á Hrafnistu í Reykjavík. Hann lést 1999.

I. Kona Einars Valgeirs var Hansína Jónsdóttir frá Miðjanesi í Reykhólahreppi í Barð., húsfreyja, f. 4. þar ágúst 1916, d. 22. júní 1989.
Börn þeirra:
1. Bergþóra Sonja Valgeirsdóttir, (kjörbarn Einars) húsfreyja, f. 10. ágúst 1938 í Hafnarfirði, d. 26. október 2015. Maður hennar Ellert Svavarsson.
2. Valgerður Valgeirsdóttir húsfreyja á Laugabóli í Mosfellsbæ, f. 5. október 1941 á Skjaldbreið. Maður hennar Andrés Ólafsson.
3. Guðbjörg Valgeirsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði, f. þar 13. desember 1944. Maður hennar Gottskálk Guðjónsson.
4. Ólafur Arnar Valgeirsson kaupmaður í Svíþjóð, f. 26. desember 1948 í Hafnarfirði. Kona Ragna Ólafsdóttir.

II. Sambýliskona Einars Valgeirs frá um 1990 var Sigríður Jóhannesdóttir. Þau bjuggu saman, síðar á Jökulgrunni og að lokum á Hrafnistu í Reykjavík.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 8. júní 1999. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Múraratal og steinsmiða. 2. útgáfa, aukin. Þorsteinn Jónsson, Brynjólfur Ámundason. Þjóðsaga 1993.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.