Valdís Stefánsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Valdís Stefánsdóttir.

Valdís Stefánsdóttir húsfreyja fæddist 2. október 1955 á Ólafsfirði og lést 31. október 2018 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hennar voru Stefán Einarsson frá Viðey, Baadermaður, verkstjóri, f. 6. júlí 1931, d. 12. febrúar 1980, og kona hans Erna Fannberg Fannbergsdóttir frá Ólafsfirði, húsfreyja, ræstitæknir, f. 23. júní 1938.

Börn Ernu og Stefáns:
1. Valdís Stefánsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1955, d. 31. október 2018. Maður hennar Svavar Garðarsson.
2. Fannberg Einar Stefánsson sjómaður, vélstjóri, f. 30. júlí 1957 á Heiði, d. 6. janúar 2014. Kona hans Jólín Lilja Brynjólfsdóttir.
3. Ómar Stefánsson vélgæslumaður, f. 24. janúar 1961 í Kornhól við Strandveg 1. Kona hans Sigfríður Björg Ingadóttir.
4. Heiðar Stefánsson sjómaður, f. 12. ágúst 1963 á Ólafsfirði, d. 3. júlí 2020. Sambúðarkona hans Birna Sigrún Haraldsdóttir.
5. Erlingur Valur Stefánsson, f. 17. febrúar 1967. Fyrrum kona hans Hrefna Hrund Eronsdóttir.
6. Linda Mary Stefánsdóttir, f. 21. maí 1972. Maður hennar Magnús Elvar Viktorsson.

Valdís var með foreldrum sínum í æsku.
Þau Svavar giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Stapavegi 6.

I. Maður Valdísar er Svavar Garðarsson vélvirkjameistari, meðeigandi Vélaverkstæðisins Þórs, f. 24. apríl 1954.
Börn þeirra:
1. Baldvin Þór Svavarsson tölvunarfræðingur í Reykjavík, f. 14. september 1977. Kona hans Harpa Sigmarsdóttir jarðfræðingur, f. 16. febrúar 1978.
2. Edda Sigrún Svavarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. mars 1983. Maður hennar Ragnar Þór Ragnarsson, f. 7. ágúst 1977.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.