Unnur VE-80

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júlí 2007 kl. 10:41 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júlí 2007 kl. 10:41 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Líkan af báti með danska laginu, líkt fyrstu vélbátarnir voru

Mótorbáturinn Unnur VE-80 kom til Eyja fjórum dögum á eftir Knerrinum, þann 9. september 1905, og var báturinn fluttur frá Danmörku með Lauru. Unnur var nýsmíði frá Frederikssund í Danmörku, súðbyrt, 7,23 tonn að stærð, 33 fet á lengd og 8 feta breið. Í henni var átta hestafla Dan-vél. Fimm voru eigendur að Unni; formaðurinn Þorsteinn Jónsson í Laufási, Geir Guðmundsson Geirlandi, Friðrik Svipmundsson Löndum, Þórarinn Gíslason Lundi og Þorsteinn Jónsson í Jómsborg sem var vélamaður.

Þann 8. apríl árið 1908 bjargaði áhöfnin á Unni franskri skútu úr háska við eyjarnar.

Meðal annarra voru þessir skipverjar á Unni: