Una Sigurðardóttir (Hruna)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. apríl 2020 kl. 20:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. apríl 2020 kl. 20:05 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Una Guðrún Rósamunda Sigurðardóttir frá Hruna, húsfreyja, fæddist 6. ágúst 1923 í Nikhól og lést 30. apríl 1978.
Foreldrar hennar voru Sigurður Þorleifsson verkamaður, f. 16. ágúst 1886 á Á á Síðu, V-Skaft., d. 15. maí 1969, og kona hans Margrét Vigdís Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 6. janúar 1898 í Uppsalakoti á Svarfaðardal, Eyjafj.s., d. 19. júlí 1965.

ctr
Börnin í Hruna með foreldrum sínum.
Aftari röð frá vinstri (þrjú börn): Una, Sigríður og Gunnlaugur.
Fremri röð frá vinstri (sex börn og foreldrarnir): Eiríkur, Einara, Fjóla, Pálína, Rósa og Margrét.

Börn Margrétar og Sigurðar:
1. Gunnlaugur Sigurðsson sjómaður, f. 20. maí 1921 að Reynifelli við Vesturveg 15b, d. 29. nóv. 1963.
2. Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. í Nikhól við Hásteinsveg 22. júní 1922, d. 22. september 2004.
3. Una Guðrún Rósamunda Sigurðardóttir húsfreyja, f. í Nikhól 6. ágúst 1923, d. 30. apríl 1978.
4. Margrét Þorleifsdóttir Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. febr. 1924 í Sjávarborg við Sjómannasund, d. 26. janúar 2012.
5. Ármann Sigurðsson, f. 6. febrúar 1927 í Sjávarborg, d. 27. mars 1927.
6. Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1928 í Hruna við Miðstræti, d. 8. nóvember 2013.
7. Pálína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 22. okt. 1929 í Hruna.
8. Eiríkur Sigurðsson sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður, bifreiðastjóri f. 31. jan. 1931 í Hruna, d. 28. nóvember 2007.
9. Oddný Sigurrós Sigurðardóttir (Rósa) húsfreyja, f. 1. okt. 1933 í Hruna, d. 25. febrúar 2013.
10. Einara Sigurðardóttir húsfreyja, f. 11. jan. 1936 í Hruna.
Barn Margrétar:
12. Pétur Sveinsson, f. 16. maí 1918 í Baldurshaga á Fáskrúðsfirði, bifreiðastjóri, síðast í Reykjavík, d. 8. september 1985.
Fósturbarn þeirra, dóttir Unu, er
13. Þorgerður Sigurvinsdóttir húsfreyja í Eyjum, síðar í Kópavogi, f. 8. október 1943.

Una var með foreldrum sínum í æsku.
Hún fluttist úr bænum í byrjun fimmta áratugarins, bjó í Hafnarfirði, giftist Sigurvin og eignaðist með honum 4 börn, Sigmar Hjört 1942, Þorgerði 1943. Þorgerður fór í fóstur til móðurforeldra sinna í Hruna 6-8 vikna gömul og ólst þar upp.
Þau Sigurvin eignuðust enn tvo drengi. Þau skildu. Una giftist Bergi. Þau voru barnlaus.
Bergur lést 1973 og Una lést 1978.

I. Fyrri maður Unu, var Sigurvin Jensson, f. 10. apríl 1916, d. 9. júlí 1953.
Börn þeirra:
1. Sigmar Hjörtur Sigurvinsson, f. 4. október 1942. Hann býr í Danmörku.
2. Þorgerður Sigurvinsdóttir húsfreyja, f. 8. október 1943. Maður hennar er Hannes Bjarnason.
3. Bragi Jens Sigurvinsson ökukennari á Álftanesi, f. 15. september 1948. Kona hans er Alma Hanna Guðmundsdóttir.
4. Sigurvin Jensson Sigurvinsson sjómaður, framkvæmdastjóri, verkamaður, verslunarmaður, f. 10. september 1952. Hann býr á Selfossi. Kona hans er Helga Guðmundsdóttir.

II. Síðari maður Unu, (10. maí 1963), var Bergur Thorberg Bergsson sjómaður, f. 22. maí 1928, d. 22. júní 1973. Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.