Tryggvi Gunnarsson (Horninu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. september 2015 kl. 19:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. september 2015 kl. 19:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) (il aðgreiningar frá alnöfnum)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Tryggvi
Hjónin Tryggvi og Ólafía.

Gunnlaugur Tryggvi Gunnarsson fæddist 29. apríl 1916 og lést 22. mars 2001. Hann bjó á Hraunbúðum síðustu ár lífs síns. Foreldrar Tryggva voru Gunnar Marel Jónsson skipasmíðameistari á Eyrarbakka og kona hans Sigurlaug Pálsdóttir. Tryggvi var þriðji elstur í hópi tólf alsystkina, en auk þeirra voru þrjú eldri hálfsystkini.

Kona Tryggva var Oddný Ólafía Sigurðardóttir, fædd 15.ágúst 1916 í Vestmannaeyjum. Þau áttu tvo syni, Sigurð Tryggvason og Gunnar Marel Tryggvason, báðir vélstjórar.

Tryggvi lauk gagnfræðaskóla 1934 og tók minna mótorvélstjórapróf árið 1937. Hann var vélstjóri og útgerðarmaður og kenndi m.a. vélstjórn á vélstjóranámskeiðum Fiskifélags Íslands í Eyjum. Hann vann hjá Fjarhitun Vestmannaeyja seinni hluta starfsævi sinnar, frá 1978-1991.

Hann var formaður Vélstjórafélags Vestmannaeyja og seinna heiðursfélagi félagsins. Bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum um skeið. Hann var ritstjóri Eyjablaðsins. Tryggvi var formaður Sósíalistafélags Vestmannaeyja.

Myndir