Tryggvi Ólafsson (Garðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. janúar 2020 kl. 17:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. janúar 2020 kl. 17:23 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Tryggvi

Tryggvi Ólafsson fæddist 8. ágúst 1911 í Garðhúsum í Vestmannaeyjum og lést 9. apríl 1985. Foreldrar hans voru Anna Vigfúsdóttir og Ólafur Jónsson sem bjuggu í Garðhúsum alla tíð.

Árið 1939 kvæntist Tryggvi Þórhildi Stefánsdóttur, dóttur Stefáns Guðlaugssonar. Bjuggu þau sér heimili við Helgafellsbraut. Þau eignuðust þrjá syni, Ólaf Tryggvason í Vestmannaeyjum, Stefán Þór sem býr í Reykjavík og Sævar sem lést árið 2005. Allir fetuðu þeir í fótspor föður síns og urðu málarar.

Um fermingu fór Tryggvi að stunda sjómennsku, lengst af á Leó með Þorvaldi Guðjónssyni, síðan á Ver með Jóni Guðmundssyni í Miðey sem var aflakóngur 1946.

Einnig vann Tryggvi við verslunarstörf í versluninni Úrval sem stóð við Miðstræti en árið 1947 sneri hann sér alfarið að málarastörfum og varð meistari í þeirri grein.

Tryggvi var einn af fremstu knattspyrnumönnum Íþróttafélagsins Þórs og var hann virkur félagi í því íþróttafélagi.

Eftir gos settust Tryggvi og Þórhildur að í Kópavogi.

Myndir


Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson. Minningargrein um Tryggva Ólafsson. Sjómannadagblað Vestmannaeyja. 1986.
  • Kristján Guðlaugsson. Íslenskir málarar. Reykjavík: Málarameistarafélag Reykjavíkur, 1982.