Torfi Jóhannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. ágúst 2012 kl. 15:05 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. ágúst 2012 kl. 15:05 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Torfi

Torfi Jóhannsson var bæjarfógeti Vestmannaeyja 1950 til 1963. Torfi fæddist þann 7. apríl 1906 og lést 10. apríl 1963. Foreldrar hans voru Jóhann Lúther Sveinbjarnarson, prófastur að Hólmum í Reyðarfirði og Guðrún Torfadóttir.

Torfi varð stúdent í Reykjavík 1925 og síðar cand. juris frá Háskóla Íslands 1930. Hann var fulltrúi hjá Eggert Claessen hrl. frá 1930 til 1932 og síðar settur skrifstofustjóri þar um tíma árið 1935. Torfi var fulltrúi í viðskiptaráðuneytinu 1939 og skipaður í viðskiptaráð 1945 og jafnframt skipaður verðlagsstjóri frá árinu 1946 til 1950.

Kona hans var Ólöf Jónsdóttir. Þau eignuðust einn son, Kristján bæjarfógeta í Vestmannaeyjum, en eina dóttur, Svövu, átti Torfi með Sveinbjörgu Bjarnadóttur áður en hann kvæntist.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.