Toppönd

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. ágúst 2006 kl. 10:02 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. ágúst 2006 kl. 10:02 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar

Toppönd (Mergus serrator)

Toppendur eru önnur tveggja tegunda fiskianda hér á landi, hin kallast gulönd. Fiskiendur eru kafendur sem éta nær eingöngu seiði og smáfisk eins og nafnið gefur til kynna.

Toppendur eru algengar hér um allt land nema á hálendinu. Stofnstærðin er talin 2.000–4.000 varppör en allstór hluti stofnsins hefur hér vetursetu eða á bilinu 5.000–15.000 fuglar, sem halda sig þá mest á sjó meðfram ströndum landsins.

Sumarheimkynnin eru við veiðivötn og ár en einnig að hluta til á grunnsævi. Varpsvæði eru lyngmóar eða kjarrlendi, en toppendur fela hreiður sín einkar vel og verpa því gjarnan í holur og glufur. Toppönd ein prófaði eitt sinn varp í Hrauney en mun ekki hafa gert það oftar en einu sinni. Hefur návistin við veiðimenn haft eitthvað að segja varðandi næðið. Varptíminn er í júní og fram í ágúst. Eggin eru 7–12 talsins. Heimilt er að veiða toppendur og mun eitthvað gert af því.


Heimildir