Tildra

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2006 kl. 11:44 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2006 kl. 11:44 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar

Tildra (Arenaria interpres)

Tildrur eru bæði farfuglar og vetrargestir á Íslandi. Um mánaðamótin apríl- maí koma þær til Íslands frá Bretlandseyjum og frá Máritaníu í Norðvestur-Afríku.

Tildrurnar dvelja á Íslandi á fjörusvæðum í 3-4 vikur og halda þá áfram til varpstöðva á Grænlandi og Norður-Kanada.

Aðalfæða tildra eru ýmiss konar lindýr, gljásilfri, þangdoppa og þarastrútur. Til að ná í æti velta tildrur oft við steinum.

Um 40.000 tildrur fljúga um Ísland. Tildrur eru alfriðaðar.


Heimildir