Theódór Jónsson (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. október 2015 kl. 19:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. október 2015 kl. 19:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Elías Theodór Jónsson.
Foreldrar Theodórs og þrjú elstu börn þeirra. Theodór situr á hnjám móður sinnar.

Elías Theodór Jónsson framkvæmdastjóri frá Háagarði fæddist 12. júní 1901 í Skálmarbæ i Álftaveri og lést 28. júlí 1959 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Jón Sverrisson bóndi, yfirfiskimatsmaður, f. 22. janúar 1871, d. 5. mars 1968, og kona hans Solveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 20. ágúst 1879, d. 21. apríl 1955.

Börn Solveigar og Jóns voru:
1. Sigurður Jónsson verslunarmaður, f. 24. júlí 1898, d. 22. apríl 1962.
2. Sverrir Magnús Jónsson sjómaður, f. 25. júní 1900, drukknaði af Minervu 24. janúar 1927.
3. Elías Theodór Jónsson framkvæmdastjóri, f. 11. júní 1901, d. 28. júlí 1959.
4. Einar Jónsson skipstjóri, f. 16. desmber 1902, drukknaði af Mínervu 24. janúar 1927.
5. Solveig Magnea Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1. nóvember 1904, d. 10. desember 1984.
6. Sigurjón Jónsson skipstjóri, síðar verkamaður, f. 18. janúar 1906, d. 5. október 1979.
7. Lilja Jónsdóttir hárgreiðslukona, f. 5. maí 1907, d. 28. desember 2006.
8. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1908, d. 24. apríl 1993.
9. Aðalheiður Svanhvít Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. janúar 1910, d. 26. október 1946.
10. Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.
11. Kjartan Jónsson lyfjafræðingur, f. 1. maí 1914, d. 5. júní 2004.
12. Svanhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 11. mars 2006.
13. Rannveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 23. apríl 2002.
14. Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður, gangavörður, f. 11. desember 1919 í Eyjum, d. 1. maí 2011.
15. Matthildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. október 1921 í Eyjum, d. 20. febrúar 2002.

Theodór var hjá foreldrum sínum í Skálmarbæ til 1902, í Skálmarbæjarhraunum 1902-1904, í Holti 1904-1919.
Hann fluttist til Eyja 1919 með foreldrum sínum og 9 systkinum, var „afhendingarmaður “ í Háagarði 1920, verslunarmaður í Háagarði 1925, framkvæmdastjóri á Brekastíg 3, (Sólbergi) 1930.
Hann kvæntist Þorbjörgu 1925 og þau eignuðust Ernu á því ári. Þorbjörg lést 1932.
Theodór var framkvæmdastjóri hlutafélagsins Freys í Eyjum, fluttist til Reykjavíkur þar sem hann var forstjóri Verksmiðjunnar Föt h.f.
Hann kvæntist Jóhönnu 1933 og eignaðist með henni 3 börn.

Elías Theodór var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (11. júní 1925), var Þorbjörg Theodórsdóttir Friðrikssonar húsfreyja, f. 18. ágúst 1903, d. 28. mars 1932.
Barn þeirra:
1. Erna Theodórsdóttir húsfreyja, síðar Whelan, f. 25. desember 1925. Hún fluttist til Bandaríkjanna.

II. Síðari kona hans, (1933), var Jóhanna Ingibjörg Sigvaldadóttir húsfreyja, ættuð frá Ólafsfirði, f. 26. ágúst 1911, d. 26. júlí 1961.
Börn þeirra:
2. Sigríður Theodórsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1937. Fyrri maður hennar var Brynjólfur Samúelsson, f. 7. júní 1936. Síðari maður hennar var Gunnar Guðmundsson, f. 19. nóvember 1920, d. 1. nóvember 1990
3. Solveig Theodórsdóttir húsfreyja, f. 14. október 1943. Fyrri maður hennar var Rútur Jónsson, f. 8. nóvember 1943. Sambýlismaður hennar: Grétar Haraldsson, f. 6. mars 1935.
4. Theodór Theodórsson, f. 29. ágúst 1945, d. 31. maí 1959.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Niðjamót Solveigar og Jóns 1. júlí 1995, rit.
  • Prestþjónustubækur.
  • Solveig Theodórsdóttir.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.