Theodór Árnason (járnsmiður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. ágúst 2015 kl. 18:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. ágúst 2015 kl. 18:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Theodór Árnason járnsmiður fæddist 10. apríl 1897 og lést 6. ágúst 1972.
Faðir hans var Árni bóndi og hreppstjóri á Hurðarbaki í Flóa, f. 29. júní 1859 á Þingskálum á Rangárvöllum, d. 6. febrúar 1941, Pálsson bónda, lengst á Þingskálum, f. 3. apríl 1834, d. 16. janúar 1870, Guðmundssonar bónda á Keldum á Rangárvöllum, faðir a.m.k. 23 lifandi fæddra barna og eins andvana fædds, með 4 konum (Keldnaætt), f. 23. nóvember 1794 á Vestri-Kirkjubæ á Rangárvöllum, d. 12. apríl 1883 á Keldum, Brynjólfssonar, og annarrar konu Guðmundar, Guðrúnar húsfreyju, f. 3. júlí 1793, d. 18. janúar 1852, Pálsdóttur.
Móðir Árna á Hurðarbaki og kona Páls á Þingskálum var Þuríður húsfreyja, f. 7. september 1832, d. 3. desember 1869, Þorgilsdóttir bónda á Rauðnefsstöðum á Rangárvöllum, f. 19. mars 1799 þar, d. þar 18. október 1878, Jónssonar, og konu Þorgils, Þuríðar húsfreyju, síðar ekkju og bónda á Rauðnefsstöðum, f. 15. nóvember 1800, d. 3. júní 1881 í Flögu í Flóa, Pálsdóttur.
Móðir Theodórs var Guðrún húsfreyja á Hurðarbaki, móðir 13 barna, f. 19. febrúar 1862 á Lambafelli u. Eyjafjöllum, d. 21. apríl 1915, Sigurðardóttir bónda þar, síðar á Flókastöðum og Kirkjulæk í Fljótshlíð og Vælugerði í Flóa, f. 26. febrúar 1828, d. 29. júní 1883, Arnbjörnssonar bónda á Háamúla og Flókastöðum í Fljótshlíð, f. 1794, Ólafssonar, og konu Arnbjörns, Guðríðar húsfreyju, f. 1786, d. 18. janúar 1868, Þorsteinsdóttur.
Arnbjörn og Guðríður voru einnig ættforeldrar Önnu Vigfúsdóttur húsfreyju og ljósmóður í Garðhúsum.
Móðir Guðrúnar á Hurðarbaki og fyrri kona Sigurðar á Lambafelli var Ingigerður húsfreyja, f. 30. desember 1834, d. 24. apríl 1862, Hannesdóttir bónda og pósts í Hraunkoti og Brekkum í Mýrdal, f. 1796 í Eyjum, d. 19. september 1838, fórst í Skeiðarárjökli, Gottsveinssonar, og konu Hannesar, Margrétar húsfreyju, f. 4. apríl 1796, d. 27. janúar 1883, Jónsdóttur.
Hannes Gottsveinsson og Margrét voru föðurforeldrar Hannesar lóðs.

Theodór var hjú hjá frændfólki sínu á Flókastöðum í Fljótshlíð 1910. Hann var sjómaður og landverkamaður í Eyjum og síðar járnsmiður þar.

Kona Theodórs var Þuríður Skúladóttir húsfreyja, f. 17. nóvember 1897, d. 28. mars 1979.
Börn þeirra hér:
1. Guðrún Svana Theodórsdóttir, f. 3. október 1922, d. 16. apríl 1994.
2. Skúli Theódórsson, f. 24. september 1925, d. 7. janúar 2004.
3. Ásta Theódórsdóttir, f. 28. ágúst 1929, d. 12. mars 2002.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.is.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson. Rangárvallahreppur, Hellu 1982.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.