The Foreign Monkeys

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. maí 2007 kl. 01:30 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. maí 2007 kl. 01:30 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árið 2006 sló unga Eyjahljómsveitin The Foreign Monkeys í gegn þegar hún sigraði í keppninni Músíktilraunir. Meðlimir hljómsveitarinnar eru Bogi Ágúst Rúnarsson, Bjarki Sigurjónsson, Víðir Heiðdal og Gísli Stefánsson. Víðir var auk þess valinn efnilegasti trommarinn.

Á sumardaginn fyrsta árið 2007 voru meðlimir hljómsveitarinnar valdir sem bæjarlistamenn Vestmannaeyja árið 2007.