Tanginn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Fiskbreiðsla

Húsið Tanginn stóð við Strandveg 46. Það var verslun Gunnars Ólafssonar en var rifin þegar verslun reis við hliðina. Þar er verslunarhúsnæði enn þann dag í dag.

Verslun

Tanginn um 1880. Efst er sölubúð og íbúðarhús. Nýja húsið snýr norður og suður en salthúsið og lifrarbræðslan er nyrst.

Lóðina fékk myllusmiðurinn Johan Julius Frederik Birck, fyrir verslunarrekstur og stofnsetti verslunina Juliushaab árið 1845. Í daglegu tali var búðin nefnd Tangabúð. Verslunina rak hann aðeins í nokkur ár og árið 1851 keypti N.N. Bryde verslunina handa tvítugum syni sínum, J.P.T. Bryde; jafnan kallaður Pétur Bryde. Árið 1879 lést faðir Péturs og erfði hann þá verslun föður síns, Garðsverzlun. Ekki var leyfilegt að einn einstaklingur ræki tvær verslanir og því hóf verslunarstjórinn Gísli Engilbertsson leigurekstur á Tanganum. Gísli rak verslunina til ársins 1893 en Pétur hafði gefið syni sínum verslunina árið 1889. Við versluninni tók, árið 1910, hópur manna við rekstrinum, Pétur Thorsteinsson, Gunnar Ólafsson og Jóhann Þ. Jósefsson. Verslunina nefndu þeir Gunnar Ólafsson & co. Þrátt fyrir að fyrirtækið bæri nafnið Gunnar Ólafsson og Co. þá gekk verslunin alltaf undir nafninu Tanginn.

Tangahúsið frá 1910. Tangahúsið frá 1846-1849 til vinstri
Verslun Gunnars Ólafssonar

Verslunarrekstur var aðal viðfangsefni fyrirtækisins en það kom víða við og rak jafnframt versluninni útgerð, umboðssölu og umboð fyrir skipafélög. Fyrirtækið var með umboð fyrir Eimskipafélagið í Eyjum til ársins 1990 og tók þá við umboði fyrir Sambandið og Ríkisskip.

Nýi Tanginn

Fram til ársins 1979 var verslunin rekin í gamla húsinu sem rekstur hennar hófst í árið 1910, en 6. desember það ár var flutt í nýbyggt húsnæði sem byggt var við hlið gömlu verslunarinnar. Árið 1985 var nýja verslunarhúsnæðið stækkað í norður og öll starfsemi fluttist þá úr gamla húsinu sem síðar var rifið og þar gerð bílastæði fyrir viðskiptavini verslunarinnar.

Verslunin Krónan er nú til húsa í Tanganum.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu

Myndir



Heimildir

  • Jóhann Gunnar Ólafsson. Verslunarstaðir í Vestmannaeyjum. Gamalt og nýtt. Reykjavík. Víkingsprent
  • Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.