Tómas Guðmarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Tómas Guðmarsson.

Tómas Guðmarsson frá Kirkjuhvammi við Kirkjuveg 43, vélaverkfræðingur fæddist 9. nóvember 1959.
Foreldrar hans voru Guðmar Tómasson frá Tommahúsi við Faxastíg 13, skipstjóri, f. 6. apríl 1933, d. 25. júlí 1967, og kona hans Sigríður Lárusdóttir frá Kirkjuhvammi við Kirkjuveg 43, húsfreyja, bankafulltrúi, f. 23. janúar 1936, d. 10. ágúst 2021.

Börn Sigríðar og Guðmars:
1. Ágústa Guðmarsdóttir, f. 4. júní 1958. Maður hennar Gísli Gíslason.
2. Tómas Guðmarsson, f. 9. nóvember 1959. Kona hans er Erla Helgadóttir.
3. Lárus Bergþór Guðmarsson, f. 16. október 1963.

Tómas lauk sveinsprófi í vélvirkjun í Iðnskólanum í Rvk 1978, lauk raungreinadeildarprófi í TÍ 1982, Civ.Ing-prófi í verkfræði í Aalborg universitetscenter í Danmörku 1987.
Hann var verkefnastjóri hjá Hitaveitu Rvk frá 1987, deildarverkfræðingur þar frá 1993.
Þau Guðbjörg Erla giftu sig , eignuðust tvö börn.

I. Kona Tómasar er Guðbjörg Erla Helgadóttir húsfreyja, ritari, f. 9. febrúar 1957. Foreldrar hennar Helgi Felixson húsasmiður í Rvk, f. 24. febrúar 1933, d. 3. ágúst 2010, og kona hans Fríða Freymóðsdóttir, húsfreyja, f. 23. janúar 1925, d. 1. október 2010.
Börn þeirra:
1. Fríða Ósk Tómasdóttir, f. 26. október 1993 í Rvk.
2. Sara Ósk Tómasdóttir, f. 2. september 1996.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónusturbækur.
  • Verkfræðingatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson. Þjóðsaga ehf. 1996.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.