Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Tíkartóadraugurinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2012 kl. 19:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2012 kl. 19:46 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Tíkartóadraugurinn færð á Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum/Tíkartóadraugurinn)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit


Tíkartóadraugurinn.


Í suðaustvestanverðu Dalfjalli, ofan við Kaplagjótu, eru grösugar hillur, sem nefndar hafa verið Tíkartær. Um langt skeið hafðist þar við afturganga, sem menn urðu oft varir við. Tildrög að afturgöngu þessari voru þau, að einhverju sinni hafði burðalítill piltur verið sendur út á Fjall til lundaveiða. Fór hann nauðugur í þessa ferð, en hart hafði verið að honum gengið. Hrapaði hann í Tíkartónum og gekk síðan aftur. Sást hann oft vera að steypa sér kollhnís fram af Tíkartónum ofan í Kaplagjótu, en aldrei gjörði hann neinum manni mein, að því er kunnugt sé.
(Almenn sögn).