Sveinn Jónsson (Landamótum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2012 kl. 13:07 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2012 kl. 13:07 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sveinn Jónsson


Sveinn

Sveinn Jónsson, Landamótum, var fæddur að Yztaskála undir Eyjafjöllum þann 1. desember 1887 og lést árið 1978.

Sveinn byrjaði sjóróðra í Vestmannaeyjum um 1900 á skipi hjá Vigfúsi Jónssyni í Holti og er með honum þar til þeir kaupa Sigurð árið 1907. Árið 1911 kaupir Sveinn Sæfara með fleiri mönnum og ári síðar hefur hann formennsku á honum. Þann 5. janúar 1916 missir hann bátinn í ofsaveðri. Mannbjörg varð. Sveinn lét smíða annan bát, Ingólf Arnarson sem hann var með til 1922. Eftir það var hann með hina ýmsu báta til 1930 er hann lét af formennsku.

Myndir



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.