Sveinn Jónsson (Hásteinsvegi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2012 kl. 13:09 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2012 kl. 13:09 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sveinn Jónsson


Sveinn

Sveinn Jónsson fæddist í Vestmannaeyjum 19. október 1931. Hann lést 6. apríl 2005. Foreldrar hans voru Jón Helgason frá Grund á Dalatanga og Jóna Sigurborg Jónsdóttir frá Eyri í Mjóafirði. Árið 1958 flutti Sveinn til Vestmannaeyja og ári síðar kvæntist Sveinn Mörtu Pálsdóttur frá Færeyjum. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 31 þar sem Marta býr enn. Börn Sveins og Mörtu eru: Heiða, óskírð (látin), Ingvar (látinn), Ingibjörg og Helga.

Sveinn lærði rennismíði og vélvirkjun og vann ýmis störf því tengd. Hann var einn af stofnendum Sveinafélags járniðnaðarmanna í Vestmannaeyjum. Auk þess var hann félagsmaður í Sjóstangveiðifélagi Vestmannaeyja og starfaði mikið fyrir það félag.