Sveinn Guðmundsson (Seljalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. mars 2018 kl. 11:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2018 kl. 11:20 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Guðmundsson á Seljalandi, sjómaður, síðan bóndi á Leirum og lengst á Nýlendu u. Eyjafjöllum fæddist 2. júlí 1891 í Grindavík og lést 8. febrúar 1991.
Foreldrar hans voru Guðmundur Loftsson sjómaður í Grindavík, f. 15. september 1838, d. 19. janúar 1920, og kona hans Guðlaug Sveinsdóttir húsfreyja, f. 24. febrúar 1859, d. 9. júlí 1914.

Sveinn var með foreldrum sínum á Hrauni í Grindavík 1901, var hjú í Steinum u. Eyjafjöllum 1910.
Þau Jónína fluttust til Eyja 1920, giftu sig í júní, bjuggu á Seljalandi. Guðlaug fæddist þar 1921.
Þau fluttust að Leirum u. Eyjafjöllum á næsta ári og síðan að Nýlendu þar, eignuðust átta börn, en misstu síðasta barnið 10 daga gamalt. Þau bjuggu á Nýlendu meðan Jónínu entist líf, en hún lést 1936.
Þá fluttist Sveinn til Hafnarfjaðar og bjó þar. Hann lést 1991.

I. Kona Sveins, (12. júní 1920), var Jónína Sigurbjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 30. mars 1890 í Hlíð u. Eyjafjöllum, d. 14. júlí 1936 á Nýlendu þar.
Börn þeirra:
1. Guðlaug Sigríður Sveinsdóttir, f. 8. apríl 1921 á Seljalandi, síðast í Reykjavík, d. 3. mars 1977.
2. Guðmunda Guðlaug Sveinsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 29. apríl 1923 á Nýlendu u. Eyjafjöllum, d. 21. mars 2000.
3. Sveinn Ólafur Sveinsson húsasmíðameistari í Hafnarfirði, f. 25. júní 1924 á Nýlendu u. Eyjafjöllum, d. 4. október 2000.
4. Elín Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja á Akranesi, f. 2. júlí 1925 á Nýlendu u. Eyjafjöllum, d. 6. mars 2004.
5. Sigurður Ólafur Sveinsson vinnumaður á Þorvaldseyri u. Eyjafjöllum, f. 8. júlí 1926 á Nýlendu u. Eyjafjöllum, d. 8. júní 2009.
6. Vilhjálmur Guðjón Sveinsson verkamaður hjá ÍSAL, f. 9. september 1927 á Nýlendu u. Eyjafjöllum, síðast í Hafnarfirði, d. 21. september 1992.
7. Lovísa Sveinsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði og Grindavík, f. 3. nóvember 1928 á Nýlendu u. Eyjafjöllum, d. 15. maí 2015.
8. Kristján Sveinsson, f. 13. apríl 1931 á Nýlendu u. Eyjafjöllum, d. 23. apríl 1931.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.