Sveinn Þórðarson (Varmadal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2019 kl. 16:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2019 kl. 16:33 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Þórðarson bóndi á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka, síðar verkamaður í Varmadal fæddist 23. júní 1868 á Mýrum í Villingaholtssókn í Flóa og lést 12. október 1936.
Foreldrar hans voru Þórður Eiríksson bóndi, f. 12. júní 1830, d. 11. desember 1908, og kona hans Helga Sveinsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1828, d. 6. desember 1908.

Sveinn var með foreldrum sínum á Mýrum í Flóa 1870 og enn 1890. Hann bjó á Gamla Hrauni 1899 og enn 1920 með konu sinni Sigríði Þorvarðardóttur og börnum þeirra.
Þau Sigríður fluttust með fjölskylduna til Eyja 1925 og bjuggu í fyrstu á Skjaldbreið. Þar lést Sigríður 1926.
Sveinn keypti hluta Varmadals 1929 og bjó þar 1930 og síðan, en hann lést 1936.

Sigríður Þorvaldsdóttir húsfreyja, kona Sveins Þórðarsonar.

I. Kona Sveins, (1899), var Sigríður Þorvaldsdóttir húsfreyja, f. 25. júlí 1870, d. 11. apríl 1926. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Þorvaldsson bóndi víða í Flóa, f. 14. mars 1829, d. 26. nóvember 1904, og kona hans Elín Þorkelsdóttir húsfreyja, f. 1828, d. 10. október 1905.
Börn þeirra:
1. Helga Sveinsdóttir húsfreyja í Varmadal, f. 10. ágúst 1900, d. 2. ágúst 1874.
2. Þórður Sveinsson sjómaður, netagerðarmaður í Engidal, f. 3. október 1902, d. 19. apríl 1967.
3. Valdimar Sveinsson í Varmadal, sjómaður, f. 18. júní 1905, d. 26. janúar 1947.
4. Elías Sveinsson í Varmadal, sjómaður, skipstjóri, f. 8. september 1910, d. 13. júlí 1988.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.