Sveinbjörn Á. Benónýsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2012 kl. 11:36 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2012 kl. 11:36 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sveinbjörn
Börn Sveinbjarnar: Sigurður múrari, Jóhanna H. og Herbert.

Sveinbjörn Ágúst Benónýsson fæddist 8. ágúst 1892 og lést 31. maí 1965. Hann var sonur Benónýs Jónssonar bónda á Torfustöðum V-Húnasýslu og Jóhönnu Guðmundsdóttur.

Kona hans var Hinrika Helgadóttir. Börn þeirra voru Sigurður múrari, Jóhanna H. og Herbert. Þau bjuggu í Núpsdal, Brekastíg 18.

Sveinbjörn var múrarameistari. Sveinbjörn var einnig ljóðskáld og samdi meðal annars ljóð um Heimaklett:

Tenglar


Heimaklettur

Heimaklettur, hátt þú rís
hrauns með gretta dranga.
Högg þér réttir hrannadís,
hörð og þétt á vanga.
Þú mátt brjóta storma stál
straumum móti gnafinn,
spyrna fótum Atlants-ál,
ölduróti kafinn.
Margra alda rún við rún
ristur gjaldamegin.
Upp í kaldan beitir brún,
bárufaldi þveginn.
Þegar hrína hret á kinn,
hreggið hvín á skalla.
Norðri krýnir konunginn
köldu líni mjalla

[...]

- Sveinbjörn Á. Benónýsson