Sveinbjörn Hjartarson (Geithálsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. mars 2019 kl. 15:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2019 kl. 15:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Sveinbjörn

Sveinbjörn Hjartarson fæddist í Vestmannaeyjum 4. nóvember 1915 og lést 5. janúar 1978. Foreldrar hans voru Katrín Sigurlín Sveinbjörnsdóttir og Hjörtur Einarsson kenndur við Geitháls. Sveinbjörn var kvæntur Guðrúnu Oddnýju Guðmundsdóttur, sem ættuð var að austan. Þau eignuðust þrjú börn, Helgu, Guðmund og Hjört.

Ungur að árum hóf hann sjóróðra með Oddgeiri Þórarinssyni og síðar með Eyjólfi á Búastöðum. Árið 1945 gerðist hann formaður á Hilmi og Frigg. Vann Sveinbjörn og skipshöfn hans mikið björgunarafrek þegar þeim tókst að bjarga 7 mönnum af Veigu þegar hún fórst í aftakaveðri árið 1951. Árið 1952 stofnaði hann ásamt bróður sínum hlutafélag sem keypti 49 lesta bát frá Danmörku sem þeir nefna Frigg líkt og gamla bátinn. Þessi bátur sökk út af Krísuvíkurbergi árið 1973 en þá höfðu þeir nýflutt útgerð sína til Grindavíkur.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Sveinbjörn:

Sveinbjörn ég garpinn greini
grérinn Hjartar í veri.
Frigg siglir drengur dyggur,
duna þó mið um bruni.
Ugglingum bana bruggar
baldinn, þó aukist kaldinn.
Formanns til fír er borinn,
fátlaus og tíðum kátur.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.