Svavar Garðarsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Svavar Garðarsson vélvirkjameistari fæddist 24. apríl 1954.
Foreldrar hans voru Garðar Þorvaldur Gíslason frá Skálholti-yngra við Urðaveg 43, vélvirkjameistari, f. 22. júní 1931, d. 17. júní 2013, og kona hans Edda Sigrún Svavarsdóttir húsfreyja, f. 1. janúar 1936, d. 29. júlí 2011.

Börn Eddu og Garðars:
1. Svavar Garðarsson vélvirkjameistari, meðeigandi Vélaverkstæðisins Þórs, f. 24. apríl 1954. Kona hans Valdís Stefánsdóttir, látin.
2. Gísli Þór Garðarsson sjómaður, skipstjóri, býr í Mosfellsbæ, f. 17. janúar 1956. Kona hans Elva Ragnarsdóttir.
3. Eggert Garðarsson vélvirkjameistari, meðeigandi Vélaverkstæðisins Þórs, f. 3. febrúar 1957, d. 29. janúar 2016. Kona hans Svava B. Johnsen.
4. Sigríður Garðarsdóttir húsfreyja, verslunarstjóri, f. 25. janúar 1959, d. 8. mars 2016. Maður hennar Hjalti Hávarðsson.
5. Lára Ósk Garðarsdóttir húsfreyja, með verslunarskólapróf, skrifstofustjóri, f. 16. október 1961. Fyrrum sambúðarmaður Grétar Þór Eyþórsson. Maður hennar Jósúa Steinar Óskarsson.
6. Garðar Rúnar Garðarsson vélstjóri, meðeigandi Vélaverkstæðisins Þórs, f. 17. nóvember 1962. Kona hans Rinda Rissakorn.

Svavar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði vélvirkjun í Vélaverkstæðinu Þór, varð sveinn 1982 og fékk meistararéttindi 1986.
Hann varð meðeigandi verkstæðisins og vann þar uns það var selt 2020.
Þau Valdís giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Stapaveg.
Valdís lést 2018.

I. Kona Svavars var Valdís Stefánsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1955, d. 31. október 2018.
Börn þeirra:
1. Baldvin Þór Svavarsson tölvunarfræðingur í Reykjavík, f. 14. september 1977. Kona hans Harpa Sigmarsdóttir jarðfræðingur, f. 16. febrúar 1978.
2. Edda Sigrún Svavarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 20. mars 1983. Maður hennar Ragnar Þór Ragnarsson, f. 7. ágúst 1977.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.