Svava Friðgeirsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. mars 2019 kl. 21:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. mars 2019 kl. 21:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Svava Friðgeirsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Svava Guðríður Friðgeirsdóttir.

Svava Guðríður Friðgeirsdóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja fæddist þar 4. júlí 1940 og lést 9. janúar 2017 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hennar voru Friðgeir Guðmundsson sjómaður, trésmiður, f. 21. júlí 2016 í Rekavík bak Látur, d. 16. júní 2001 í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, og kona hans Elínborg Dagmar Sigurðardóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja, f. 8. september 1915 í Dvergasteini, síðast í Kópavogi, d. 9. júlí 1991.

Börn Elínborgar Dagmarar og Friðgeirs:
1. Svava Guðríður Friðgeirsdóttir húsfreyja, f. 4. júlí 1940 á Efra-Hvoli, d. 9. janúar 2017. Maður hennar er Sævald Pálsson frá Þingholti.
2. Guðlaugur Kjartan Friðgeirsson bifvélavirkjameistari, f. 1. desember 1942 á Skjaldbreið. Kona hans er Þorgerður Sigríður Þorgeirsdóttir frá Sælundi.
3. Drengur, f. 14. nóvember 1945 í Hvíld, d. 24. nóvember 1945.
4. Sigríður Þyrí Friðgeirsdóttir húsfreyja, f. 30. maí 1947 í Hvíld. Maður hennar er Lárus Guðberg Lárusson.
5. Sigrún Þóranna Friðgeirsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 17. maí 1948 í Hvíld. Fyrri maður hennar var Pétur Ólafsson Welker. Síðari maður hennar er Halldór Þór Guðmundsson.
6. Elínborg Fríða Friðgeirsdóttir húsfreyja í Danmörku, f. 4. apríl 1952 í Hvíld. Maður hennar er Kristján Valgeirsson.
7. Sólveig Friðgeirsdóttir húsfreyja á Laugarvatni, f. 6. júní 1953 í Hvíld. Maður hennar er Böðvar Ingi Benjamínsson.
8. Hrefna Friðgeirsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. maí 1956 í Hvíld. Maður hennar er Jónas Hafsteinn Jónasson.

Svava var með foreldrum sínum í æsku, á Efra-Hvoli, síðan í Hvíld.
Þau Sævald giftu sig 1959, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu fyrst í Hvíld, Faxastíg 14, á Boðaslóð 26 við giftingu 1959, en fluttust þá á Hólagötu 30 og bjuggu þar við upphaf Gossins 1973. Þau byggðu Hrauntún 46 og bjuggu þar lengi, en í Baldurshaga frá 2009.
Svava lést 2017.

I. Maður Svövu Guðríðar, (17. maí 1959), er Sævald Pálsson frá Þingholti, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 27. desember 1936.
Börn þeirra:
1. Elías Geir Sævaldsson sjómaður, f. 30. janúar 1958. Kona hans er Anna Gerða Bjarnadóttir.
2. Sigurgeir Sævaldsson sjómaður, f. 30. júlí 1959. Kona hans er Lóa Hrund Sigurbjörnsdóttir
3. Grétar Þór Sævaldsson sjómaður, f. 24. júlí 1960. Kona hans er Kristný S. Tryggvadóttir.
4. Ásdís Sævaldsdóttir húsfreyja, f. 5. ágúst 1962. Maður hennar er Hallgrímur Tryggvason.
5. Erna Sævaldsdóttir húsfreyja, f. 8. apríl 1967. Maður hennar er Gylfi Sigurjónsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 21. janúar 2017. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.