Surtseyjarviti

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. júní 2006 kl. 16:06 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. júní 2006 kl. 16:06 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Vitar
Á Heimaey
Í úteyjum

Vita var komið fyrir í Surtsey árið 1973 en vegna veðurs og skemmda var rekstri hans hætt. Húsið, sem stendur enn, er steinsteypt, og 3,3 m á kant og 3,5 m á hæð. Á húsið var sett 3,3 m hátt ljóshús og stóð vitinn þá fullhátt, heildarhæð hans var hátt í sjö metrar. Húsið skemmdist tvisvar fyrsta árið í sprengingum sem talið er að orsökuðust af uppstreymi gasgufa. Veðurathugunarstöð sem sett var við vitann skemmdist í veðurofsa. Í kjölfar þessa erfiðleika var rekstri vitans hætt.


Heimildir

  • Guðmundur Bernódusson, Guðmundur L. Hafsteinsson og Kristján Sveinsson. Vitar á Íslandi. Kópavogur: Siglingastofnun Ríkisins, 2002.