„Surtsey“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
{{Eyjur}}
{{Eyjur}}
Það voru skipverjar á [[Ísleifi II]]. sem tilkynntu um neðansjávareldgos að morgni 14. nóvember 1963. Þá mældu þeir sjávarhita í hálfrar mílu (900m) fjarlægð í kringum 10°C. Var þá hafið '''Surtseyjargosið'''.
Það voru skipverjar á [[Ísleifi II]]. sem tilkynntu um neðansjávareldgos að morgni 14. nóvember 1963. Þá mældu þeir sjávarhita í hálfrar mílu (900m) fjarlægð í kringum 10°C. Var þá hafið '''Surtseyjargosið'''.


Gosið magnaðist hratt og varð hár gosmökkur. Daginn eftir árdegis, sást í gosmekkinum að eyja hafði myndast. Er því ljóst að gosið hefur hafist nokkrum dögum áður en þess varð vart. Þann 12. nóvember fannst brennisteinslykt í lofti í suðvestanátt við Vík í Mýrdal, en engra jarðhræringa hafði orðið vart dagana fyrir uppkomu gossins. Gosið stóð fram til 5. júní 1967 eða í um það bil þrjú og hálft ár. Eyjan er um 20 km suðvestur af [[Heimaey]], eða um 30 km suðvestur af Landeyjasandi á meginlandi Íslands.  
Gosið magnaðist hratt og varð hár gosmökkur. Daginn eftir árdegis, sást í gosmekkinum að eyja hafði myndast. Er því ljóst að gosið hefur hafist nokkrum dögum áður en þess varð vart. Þann 12. nóvember fannst brennisteinslykt í lofti í suðvestanátt við Vík í Mýrdal, en engra jarðhræringa hafði orðið vart dagana fyrir uppkomu gossins. Gosið stóð fram til 5. júní 1967 eða í um það bil þrjú og hálft ár. Eyjan er um 20 km suðvestur af [[Heimaey]], eða um 30 km suðvestur af Landeyjasandi á meginlandi Íslands.  


[[Mynd:Surtsey-gos.jpg|thumb|left|Surtseyjargosið.]]
[[Mynd:Surtsey-gos.jpg|thumb|left|Surtseyjargosið.]]
Varð þá til við gosið syðsta eyjan í [[Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjaklasanum]], og jafnframt á Íslandi, en miðpunktur hennar er 63°18'N, 20°36'W. Hún er jafnframt eina eyjan sem hefur myndast á sögulegum tíma við Ísland, og myndaðist hún í mesta neðansjávareldgosinu sem mælst hefur á sögulegum tíma.
Varð þá til við gosið syðsta eyjan í [[Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjaklasanum]], og jafnframt á Íslandi, en miðpunktur hennar er 63°18'N, 20°36'W. Hún er jafnframt eina eyjan sem hefur myndast á sögulegum tíma við Ísland, og myndaðist hún í mesta neðansjávareldgosi sem mælst hefur á sögulegum tíma.


Eyjan fékk nafnið Surtsey og er nafnið tekið úr norrænni goðafræði. Minnst er á Surt hinn svarta í Völuspá: „''Surtr ferr sunnan; með sviga lævi''“.  
Eyjan fékk nafnið Surtsey og er nafnið tekið úr norrænni goðafræði. Minnst er á Surt hinn svarta í Völuspá: „''Surtr ferr sunnan; með sviga lævi''“.  
Strax þegar eyjan myndaðist sáu vísindamenn hversu frábært tækifæri þeir höfðu til þess að rannsaka nýja eyju og myndun lífs á eynni. Surtsey var því friðlýst, og er því á náttúruminjaskrá. Vísindamenn vildu komast að því hvort líf myndi komast á fót af sjálfum sér eða hvort maðurinn þurfi að hafa eitthvað með málin að gera. Umferð þangað er aðeins leyfð í vísindaskyni og þarf leyfi '''Surtseyjarfélagsins''' fyrir heimsókn í eyjuna.
Strax þegar eyjan myndaðist sáu vísindamenn hversu frábært tækifæri þeir höfðu til þess að rannsaka nýja eyju og myndun lífs á eynni. Surtsey var því friðlýst, og er því á náttúruminjaskrá. Vísindamenn vildu komast að því hvort líf kæmist á fót af sjálfu sér eða hvort maðurinn þyrfti að hafa eitthvað með málin að gera. Umferð þangað er aðeins leyfð í vísindaskyni og þarf leyfi '''Surtseyjarfélagsins''' fyrir heimsókn í eyjuna.


Nokkrar smáeyjar mynduðust í neðansjávargosunum. Mánuð eftir upphaf gossins opnaðist eldstöð austan við Surtsey og var opin frá desember til janúar 1964. Engin eyja myndaðist en á yfirborðinu mátti sjá hraunkúlur þeytast í loft upp. Árið 1965 mynduðust tvær eyjar, Syrtlingur og Jólnir, sem varð til á jóladag sama ár. Báðar eyjurnar hafa ekki þolað ágang Norður-Atlantshafsins og hafa horfið af yfirborði sjávar. Eflaust er forvitnilegt að skoða umhverfi Surtseyjar neðansjávar. Þar eru leifar Syrtlings og Jólnis og ætti að vera komið blómlegt líf þar, með kóröllum og lífi.
Nokkrar smáeyjar mynduðust í neðansjávargosunum. Mánuði eftir upphaf gossins opnaðist eldstöð austan við Surtsey og var opin frá desember til janúar 1964. Engin eyja myndaðist en á yfirborðinu mátti sjá hraunkúlur þeytast í loft upp. Árið 1965 mynduðust tvær eyjar, Syrtlingur og Jólnir, sem varð til á jóladag sama ár. Hvorug eyjanna þoldi ágang Norður-Atlantshafsins og hurfu báðar af yfirborði sjávar. Eflaust er forvitnilegt að skoða umhverfi Surtseyjar neðansjávar. Þar eru leifar Syrtlings og Jólnis og ætti að vera komið blómlegt líf þar, með kóröllum og lífi.


Surtsey hefur ekki farið varhluta af ágangi sjávar og sést það vel á stærð hennar. Þegar gosinu lauk var stærð Surtseyjar 2,7 km². 40 árum eftir lok gossins hefur eyjan minnkað um tæpan helming. Eyjan var mæld 1,5 km² árið 2002. Ætla má að sjávarrofið haldi áfram í 160 ár, þar til að aðeins móbergsstapi verður eftir og mun þá eyjan ef til vill líkjast [[Bjarnarey]].
Surtsey hefur ekki farið varhluta af ágangi sjávar og sést það vel á stærð hennar. Þegar gosinu lauk var stærð Surtseyjar 2,7 km². 40 árum eftir lok gossins hefur eyjan minnkað um tæpan helming. Eyjan var mæld 1,5 km² árið 2002. Ætla má að sjávarrofið haldi áfram í 160 ár, þar til að aðeins móbergsstapi verður eftir og mun þá eyjan ef til vill líkjast [[Bjarnarey]].


Lífríkið er orðið fjölbreytt neðansjávar og er flóran mikil. [[Þörungar]], [[hrúðurkarlar]], [[krossfiskar]] og öll algengustu sjávardýrin hafast fundist við Surtsey. [[Selir]] nota Surtsey sem hvíldarstað og hafa kæpt þar reglulega síðustu ár. Ýmsar tegundir fléttna, mosa og háplantna hafa numið land. [[Fjörukál]] og [[melgresi]] eru elstu landnemarnir. Nýjustu plönturnar eru [[friggjargras]], [[gulmura]] og [[gulvíðir]]. Minnst 8 tegundir varpfugla hafa tekið sér bólfestu í Surtsey. Fyrstir til að verpa voru fýlarnir og var það árið 1970. Teistur hófu svo varp ári seinna. Ýmis konar skordýr hafa fundið sér leið til Surtseyjar, m.a. [[köngulær]], [[fiðrildi]] og [[bjöllur]].
Lífríkið er orðið fjölbreytt neðansjávar og er flóran mikil. [[Þörungar]], [[hrúðurkarlar]], [[krossfiskar]] og öll algengustu sjávardýr hafa fundist við Surtsey. [[Selir]] nota Surtsey sem hvíldarstað og hafa kæpt þar reglulega síðustu ár. Ýmsar tegundir fléttna, mosa og háplantna hafa numið land. [[Fjörukál]] og [[melgresi]] eru elstu landnemarnir. Nýjustu plönturnar eru [[friggjargras]], [[gulmura]] og [[gulvíðir]]. Minnst 8 tegundir varpfugla hafa tekið sér bólfestu í Surtsey. Fyrstur til að verpa var fýllinn og var það árið 1970. Teista hóf svo varp ári seinna. Ýmiss konar skordýr hafa fundið sér leið til Surtseyjar, m.a. [[köngulær]], [[fiðrildi]] og [[bjöllur]].
Að undanförnu hafa vaknað upp spurningar um framtíð Surtseyjar. Sumir vilja opna Surtsey fyrir ferðamönnum og leyfa ótakmarkaðan aðgang í eyjuna. Embættismenn og Surtseyjarfélagið taka þó fyrir það og segja að um óákveðinn tíma muni eyjan vera notuð til rannsókna og þar af leiðandi takmarkaður aðgangur. Tíminn mun leiða í ljós hlutverk Surtseyjar á komandi tímum.
Að undanförnu hafa vaknað upp spurningar um framtíð Surtseyjar. Sumir vilja opna Surtsey fyrir ferðamönnum og leyfa ótakmarkaðan aðgang í eyjuna. Embættismenn og Surtseyjarfélagið taka þó fyrir það og segja að um óákveðinn tíma muni eyjan verða notuð til rannsókna og þar af leiðandi takmarkaður aðgangur. Tíminn mun leiða í ljós hlutverk Surtseyjar á komandi tímum.


== Surtseyjarfélagið ==
== Surtseyjarfélagið ==
[[Mynd:frimerki2.gif|thumb|100px|Frímerki af Surtsey.]]
[[Mynd:frimerki2.gif|thumb|100px|Frímerki af Surtsey.]]
Þegar Surtsey var mynduð og ljóst að hún væri komin til að vera var stofnað áhugafélag um skipulag rannsókna í eynni. Tilgangur Surtseyjarfélagsins er, orðrétt úr lögum þess: ,,Að efla rannsóknir í jarðvísindum og líffræði í sambandi við Surtsey og á Íslandi almennt.” Þrátt fyrir að stunda ekki sjálft rannsóknarstörf hefur félagið gefið út margar skýrslur með niðurstöðum rannsókna. Félagið hefur staðið að byggingu tveggja kofa, þar sem vísindamenn hafa haft viðurværi við rannsóknir. Formaður Surtseyjarfélagsins er Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Surtseyjarfélagið hefur aðsetur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og er samstarf milli þessara tveggja stofnanna mjög gott. Surtseyjarfélagið hefur unnið frábært starf varðandi verndun eyjarinnar og hefur séð til þess að lífríkið fái að blómstra nánast óáreitt.
Þegar Surtsey varð til og ljóst að hún væri komin til að vera var stofnað áhugafélag um skipulag rannsókna í eynni. Tilgangur Surtseyjarfélagsins er, orðrétt úr lögum þess: ,,Að efla rannsóknir í jarðvísindum og líffræði í sambandi við Surtsey og á Íslandi almennt.” Þrátt fyrir að stunda ekki sjálft rannsóknarstörf hefur félagið gefið út margar skýrslur með niðurstöðum rannsókna. Félagið hefur staðið að byggingu tveggja kofa í eynni, þar sem vísindamenn hafa haft aðsetur við rannsóknir. Formaður Surtseyjarfélagsins er Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Surtseyjarfélagið hefur aðsetur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og er samstarf milli þessara tveggja stofnana mjög gott. Surtseyjarfélagið hefur unnið frábært starf varðandi verndun eyjarinnar og hefur séð til þess að lífríkið fái að blómstra nánast óáreitt.


== Surtseyjargosið ==
== Surtseyjargosið ==
[[Mynd:Surtsey-gos2.jpg|thumb|left|Fyrstu dagar gossins.]]Gosið hófst með miklum krafti. Strax fyrsta daginn, 14. nóvember 1963, var gosmökkurinn kominn upp í 6 km hæð. Þetta fyrsta neðansjávareldgos á sögulegum tíma, hér við land, hófst á 65 faðma dýpi 3 sjómílum vestur af [[Geirfuglasker]]i. Strax við upphaf gossins urðu vísindamenn spenntir og fyrsta gosdaginn sveimuðu flugvélar og bátar um svæðið. Voru þar á ferðinni farþega-, her- og rannsóknarflugvélar.
[[Mynd:Surtsey-gos2.jpg|thumb|left|Fyrstu dagar gossins.]]Gosið hófst með miklum krafti. Strax fyrsta daginn, 14. nóvember 1963, var gosmökkurinn kominn upp í 6 km hæð. Þetta fyrsta neðansjávareldgos á sögulegum tíma, hér við land, hófst á 65 faðma dýpi 3 sjómílur vestur af [[Geirfuglasker]]i. Strax við upphaf gossins urðu vísindamenn spenntir og fyrsta gosdaginn sveimuðu flugvélar og bátar um svæðið. Voru þar á ferðinni farþega-, her- og rannsóknarflugvélar.


Tveimur dögum fyrir sjáanlegt upphaf gossins fannst brennisteinsfnykur austur á Vík í Mýrdal. Tengdu þeir frekar lyktina við hugsanlegt gos úr jökli en neðansjávareldgos. Nokkrir smáskjálftar höfðu mælst í nánd við verðandi gossvæði en á Íslandi eru stöðugar jarðhræringar, svo mælingamenn sáu ekkert varhugavert við framvindu mála suður af Heimaey. Ekkert annað var frábrugðið venjulegum vetrardegi þarna um slóðir. Fiskibátarnir sigldu um svæðið, fuglarnir steyptu sér í sjóinn og veðrið var kalt en milt.
Tveimur dögum fyrir sjáanlegt upphaf gossins fannst brennisteinsfnykur austur í Vík í Mýrdal. Sú lykt var frekar tengd við hugsanlegt gos úr jökli en neðansjávareldgos. Nokkrir smáskjálftar höfðu mælst í nánd við verðandi gossvæði en á Íslandi eru stöðugar jarðhræringar, svo mælingamenn sáu ekkert varhugavert við framvindu mála suður af Heimaey. Ekkert annað var frábrugðið venjulegum vetrardegi þarna um slóðir. Fiskibátarnir sigldu um svæðið, fuglarnir steyptu sér í sjóinn og veðrið var kalt en milt.
Vísindamenn voru hræddir um að sprenging gæti orðið í gosinu. Ef ný sprunga opnaðist þá myndi sjór falla í sprunguna og gífurleg sprenging yrði. Bátar voru því varaðir við að fara of nærri vegna hættunnar.
Vísindamenn voru hræddir um að sprenging gæti orðið í gosinu. Ef ný sprunga opnaðist þá myndi sjór falla í hana og gífurleg sprenging yrði. Bátar voru því varaðir við að fara of nærri vegna hættunnar.


Annan dag gossins myndaðist eyjan. Eyja þessi var þá einungis vikurhaugur. Eyjuna kölluðu vísindamenn Séstey, en sumir kölluðu hana Séstei sökum hversu illa sást í hana vegna gosmökks. Eyjan stækkaði jafnt og þétt út gostímann en háði jafnframt baráttu um tilvist sína við veðuröflin og bárur hafsins.  
Annan dag gossins myndaðist eyjan. Eyja þessi var þá einungis vikurhaugur. Eyjuna kölluðu vísindamenn Séstey, en sumir kölluðu hana Séstei sökum hversu illa sást í hana fyrir gosmekkinum. Eyjan stækkaði jafnt og þétt út gostímann en háði jafnframt baráttu um tilvist sína við veðurguðina og bárur hafsins.  


Fyrsti maðurinn sem steig fæti í Surtsey var [[Kristján Guðmundsson]], sjómaður, en með honum í för voru [[Kristján Egilsson]], náttúrufræðingur og [[Egill Egilsson]], smiður.
Fyrstu Íslendingarnir sem stigu fæti í Surtsey voru [[Kristján Guðmundsson]], sjómaður, en með honum í för voru bræðurnir [[Kristján Egilsson]], núverandi safnvörður Náttúrugripasafnsins í Eyjum og [[Egill Egilsson]], smiður.


Aðal hraungígur Surtseyjar er Surtur. Hraunrennsli í eynni var mjög stöðugt. Örfá hlé urðu á rennslinu og í þeim hléum myndaði sjórinn hamra Surtseyjar. Nokkrar spungur opnuðust á eynni á næstu árum. Þann 19. ágúst 1966 opnaðist síðasta spungan og var hún 200 m löng. Síðast sást til hraunrennsli í Surtsey 5. júní 1967.  
Aðal hraungígur Surtseyjar er Surtur. Hraunrennsli í eynni var mjög stöðugt. Örfá hlé urðu á rennslinu og í þeim hléum myndaði sjórinn hamra Surtseyjar. Nokkrar spungur opnuðust á eynni á næstu árum. Þann 19. ágúst 1966 opnaðist síðasta spungan og var hún 200 m löng. Síðast sást til hraunrennslis í Surtsey 5. júní 1967.  


=== Frakkarnir mæta ===
=== Frakkarnir mæta ===
Stuttu eftir fæðingu eynnar komu franskir blaðamenn í heimsókn. Það var þann 6. desember 1963. Þeir fóru í land en eftir 15 mínútna dvöl hvöttu sprengingar og hraunflóðið blaðamennina fara. Þetta atvik varð heimsfrægt þegar blaðamennirnir rituðu um það í blaði sínu Paris Match.
Stuttu eftir fæðingu eyjarinnar komu franskir blaðamenn í heimsókn. Það var þann 6. desember 1963. Þeir fóru í land en eftir 15 mínútna dvöl urðu miklar sprengingar og hraunflóð til þess þeir forðuðu sér á burt. Þetta atvik náði heimsfrægð þegar blaðamennirnir rituðu um það í blaði sínu, Paris Match.


== Jarðfræði ==
== Jarðfræði ==
[[Mynd:Surtsey-gígar.jpg|thumb|Gígar Surtseyjar.]]  
[[Mynd:Surtsey-gígar.jpg|thumb|Gígar Surtseyjar.]]  
Margvíslegar jarðfræðilegar rannsóknir hafa verið gerðar í Surtsey, bæði á meðan gosum stóð og ekki síður eftir að þeim lauk. Má þar telja rannsóknir á bergfræði gjósku og hrauns, steindafræði frum- og síðsteinda, efnasamsetningu lofttegunda úr bergkvikunni og sjávar- og vindrofi. Af jarðeðlisfræðilegum athugunum má nefna jarðskjálftamælingar, flugsegulmælingar, þyngdarmælingar og GPS-mælingar.  
Margvíslegar jarðfræðilegar rannsóknir hafa verið gerðar í Surtsey, bæði meðan á gosi stóð og ekki síður eftir að því lauk. Má þar telja rannsóknir á bergfræði gjósku og hrauns, steindafræði frum- og síðsteinda, efnasamsetningu lofttegunda úr bergkvikunni og sjávar- og vindrofi. Af jarðeðlisfræðilegum athugunum má nefna jarðskjálftamælingar, flugsegulmælingar, þyngdarmælingar og GPS-mælingar.  


=== Bergfræði gosefna ===
=== Bergfræði gosefna ===
Lína 44: Lína 44:


== Framtíð eyjunnar ==  
== Framtíð eyjunnar ==  
[[Mynd:Surtsey-1999.jpg|thumb|Surtsey í dag.]]Að undanförnu hafa vaknað upp spurningar um framtíð Surtseyjar. Sumir vilja opna Surtsey fyrir ferðamönnum og leyfa ótakmarkaðan aðgang í eyjuna. Embættismenn og Surtseyjarfélagið taka þó fyrir það og segja að um óákveðinn tíma muni eyjan vera notuð til rannsókna og þar af leiðandi takmarkaður aðgangur. Tíminn mun leiða í ljós hlutverk Surtseyjar á komandi tímum. Ennþá eru nýjar plöntur að finnast í eynni og dýra- og fuglalíf er að dafna. Hægt er að segja að lífið í eynni sé farið að líkjast öðrum eyjum Vestmannaeyja þar sem lundinn er farinn að sýna sig í eynni. Sást hann í fyrsta skipti árið 2004 og var hann þá að koma með síli handa ungum sínum.  Surtsey gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki varðandi rannsóknir og vitneskju manna á því hvernig líf á landi verður til.
[[Mynd:Surtsey-1999.jpg|thumb|Surtsey í dag.]]Að undanförnu hafa vaknað upp spurningar um framtíð Surtseyjar. Sumir vilja opna Surtsey fyrir ferðamönnum og leyfa ótakmarkaðan aðgang í eyjuna. Embættismenn og Surtseyjarfélagið taka þó fyrir það og segja að um óákveðinn tíma muni eyjan verða notuð til rannsókna og þar af leiðandi takmarkaður aðgangur. Tíminn mun leiða í ljós hlutverk Surtseyjar á komandi tímum. Ennþá eru nýjar plöntur að finnast í eynni og dýra- og fuglalíf er að dafna. Hægt er að segja að lífið í eynni sé farið að líkjast öðrum eyjum Vestmannaeyja þar sem lundinn er farinn að sýna sig í eynni. Sást hann í fyrsta skipti árið 2004 og var hann þá að koma með síli handa ungum sínum.  Surtsey gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki varðandi rannsóknir og vitneskju manna á því hvernig líf á landi verður til.


== Tenglar ==
== Tenglar ==

Útgáfa síðunnar 3. nóvember 2005 kl. 14:13

Það voru skipverjar á Ísleifi II. sem tilkynntu um neðansjávareldgos að morgni 14. nóvember 1963. Þá mældu þeir sjávarhita í hálfrar mílu (900m) fjarlægð í kringum 10°C. Var þá hafið Surtseyjargosið.

Gosið magnaðist hratt og varð hár gosmökkur. Daginn eftir árdegis, sást í gosmekkinum að eyja hafði myndast. Er því ljóst að gosið hefur hafist nokkrum dögum áður en þess varð vart. Þann 12. nóvember fannst brennisteinslykt í lofti í suðvestanátt við Vík í Mýrdal, en engra jarðhræringa hafði orðið vart dagana fyrir uppkomu gossins. Gosið stóð fram til 5. júní 1967 eða í um það bil þrjú og hálft ár. Eyjan er um 20 km suðvestur af Heimaey, eða um 30 km suðvestur af Landeyjasandi á meginlandi Íslands.

Surtseyjargosið.

Varð þá til við gosið syðsta eyjan í Vestmannaeyjaklasanum, og jafnframt á Íslandi, en miðpunktur hennar er 63°18'N, 20°36'W. Hún er jafnframt eina eyjan sem hefur myndast á sögulegum tíma við Ísland, og myndaðist hún í mesta neðansjávareldgosi sem mælst hefur á sögulegum tíma.

Eyjan fékk nafnið Surtsey og er nafnið tekið úr norrænni goðafræði. Minnst er á Surt hinn svarta í Völuspá: „Surtr ferr sunnan; með sviga lævi“. Strax þegar eyjan myndaðist sáu vísindamenn hversu frábært tækifæri þeir höfðu til þess að rannsaka nýja eyju og myndun lífs á eynni. Surtsey var því friðlýst, og er því á náttúruminjaskrá. Vísindamenn vildu komast að því hvort líf kæmist á fót af sjálfu sér eða hvort maðurinn þyrfti að hafa eitthvað með málin að gera. Umferð þangað er aðeins leyfð í vísindaskyni og þarf leyfi Surtseyjarfélagsins fyrir heimsókn í eyjuna.

Nokkrar smáeyjar mynduðust í neðansjávargosunum. Mánuði eftir upphaf gossins opnaðist eldstöð austan við Surtsey og var opin frá desember til janúar 1964. Engin eyja myndaðist en á yfirborðinu mátti sjá hraunkúlur þeytast í loft upp. Árið 1965 mynduðust tvær eyjar, Syrtlingur og Jólnir, sem varð til á jóladag sama ár. Hvorug eyjanna þoldi ágang Norður-Atlantshafsins og hurfu báðar af yfirborði sjávar. Eflaust er forvitnilegt að skoða umhverfi Surtseyjar neðansjávar. Þar eru leifar Syrtlings og Jólnis og ætti að vera komið blómlegt líf þar, með kóröllum og lífi.

Surtsey hefur ekki farið varhluta af ágangi sjávar og sést það vel á stærð hennar. Þegar gosinu lauk var stærð Surtseyjar 2,7 km². 40 árum eftir lok gossins hefur eyjan minnkað um tæpan helming. Eyjan var mæld 1,5 km² árið 2002. Ætla má að sjávarrofið haldi áfram í 160 ár, þar til að aðeins móbergsstapi verður eftir og mun þá eyjan ef til vill líkjast Bjarnarey.

Lífríkið er orðið fjölbreytt neðansjávar og er flóran mikil. Þörungar, hrúðurkarlar, krossfiskar og öll algengustu sjávardýr hafa fundist við Surtsey. Selir nota Surtsey sem hvíldarstað og hafa kæpt þar reglulega síðustu ár. Ýmsar tegundir fléttna, mosa og háplantna hafa numið land. Fjörukál og melgresi eru elstu landnemarnir. Nýjustu plönturnar eru friggjargras, gulmura og gulvíðir. Minnst 8 tegundir varpfugla hafa tekið sér bólfestu í Surtsey. Fyrstur til að verpa var fýllinn og var það árið 1970. Teista hóf svo varp ári seinna. Ýmiss konar skordýr hafa fundið sér leið til Surtseyjar, m.a. köngulær, fiðrildi og bjöllur. Að undanförnu hafa vaknað upp spurningar um framtíð Surtseyjar. Sumir vilja opna Surtsey fyrir ferðamönnum og leyfa ótakmarkaðan aðgang í eyjuna. Embættismenn og Surtseyjarfélagið taka þó fyrir það og segja að um óákveðinn tíma muni eyjan verða notuð til rannsókna og þar af leiðandi takmarkaður aðgangur. Tíminn mun leiða í ljós hlutverk Surtseyjar á komandi tímum.

Surtseyjarfélagið

Frímerki af Surtsey.

Þegar Surtsey varð til og ljóst að hún væri komin til að vera var stofnað áhugafélag um skipulag rannsókna í eynni. Tilgangur Surtseyjarfélagsins er, orðrétt úr lögum þess: ,,Að efla rannsóknir í jarðvísindum og líffræði í sambandi við Surtsey og á Íslandi almennt.” Þrátt fyrir að stunda ekki sjálft rannsóknarstörf hefur félagið gefið út margar skýrslur með niðurstöðum rannsókna. Félagið hefur staðið að byggingu tveggja kofa í eynni, þar sem vísindamenn hafa haft aðsetur við rannsóknir. Formaður Surtseyjarfélagsins er Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra. Surtseyjarfélagið hefur aðsetur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og er samstarf milli þessara tveggja stofnana mjög gott. Surtseyjarfélagið hefur unnið frábært starf varðandi verndun eyjarinnar og hefur séð til þess að lífríkið fái að blómstra nánast óáreitt.

Surtseyjargosið

Fyrstu dagar gossins.

Gosið hófst með miklum krafti. Strax fyrsta daginn, 14. nóvember 1963, var gosmökkurinn kominn upp í 6 km hæð. Þetta fyrsta neðansjávareldgos á sögulegum tíma, hér við land, hófst á 65 faðma dýpi 3 sjómílur vestur af Geirfuglaskeri. Strax við upphaf gossins urðu vísindamenn spenntir og fyrsta gosdaginn sveimuðu flugvélar og bátar um svæðið. Voru þar á ferðinni farþega-, her- og rannsóknarflugvélar.

Tveimur dögum fyrir sjáanlegt upphaf gossins fannst brennisteinsfnykur austur í Vík í Mýrdal. Sú lykt var frekar tengd við hugsanlegt gos úr jökli en neðansjávareldgos. Nokkrir smáskjálftar höfðu mælst í nánd við verðandi gossvæði en á Íslandi eru stöðugar jarðhræringar, svo mælingamenn sáu ekkert varhugavert við framvindu mála suður af Heimaey. Ekkert annað var frábrugðið venjulegum vetrardegi þarna um slóðir. Fiskibátarnir sigldu um svæðið, fuglarnir steyptu sér í sjóinn og veðrið var kalt en milt. Vísindamenn voru hræddir um að sprenging gæti orðið í gosinu. Ef ný sprunga opnaðist þá myndi sjór falla í hana og gífurleg sprenging yrði. Bátar voru því varaðir við að fara of nærri vegna hættunnar.

Annan dag gossins myndaðist eyjan. Eyja þessi var þá einungis vikurhaugur. Eyjuna kölluðu vísindamenn Séstey, en sumir kölluðu hana Séstei sökum hversu illa sást í hana fyrir gosmekkinum. Eyjan stækkaði jafnt og þétt út gostímann en háði jafnframt baráttu um tilvist sína við veðurguðina og bárur hafsins.

Fyrstu Íslendingarnir sem stigu fæti í Surtsey voru Kristján Guðmundsson, sjómaður, en með honum í för voru bræðurnir Kristján Egilsson, núverandi safnvörður Náttúrugripasafnsins í Eyjum og Egill Egilsson, smiður.

Aðal hraungígur Surtseyjar er Surtur. Hraunrennsli í eynni var mjög stöðugt. Örfá hlé urðu á rennslinu og í þeim hléum myndaði sjórinn hamra Surtseyjar. Nokkrar spungur opnuðust á eynni á næstu árum. Þann 19. ágúst 1966 opnaðist síðasta spungan og var hún 200 m löng. Síðast sást til hraunrennslis í Surtsey 5. júní 1967.

Frakkarnir mæta

Stuttu eftir fæðingu eyjarinnar komu franskir blaðamenn í heimsókn. Það var þann 6. desember 1963. Þeir fóru í land en eftir 15 mínútna dvöl urðu miklar sprengingar og hraunflóð til þess að þeir forðuðu sér á burt. Þetta atvik náði heimsfrægð þegar blaðamennirnir rituðu um það í blaði sínu, Paris Match.

Jarðfræði

Gígar Surtseyjar.

Margvíslegar jarðfræðilegar rannsóknir hafa verið gerðar í Surtsey, bæði meðan á gosi stóð og ekki síður eftir að því lauk. Má þar telja rannsóknir á bergfræði gjósku og hrauns, steindafræði frum- og síðsteinda, efnasamsetningu lofttegunda úr bergkvikunni og sjávar- og vindrofi. Af jarðeðlisfræðilegum athugunum má nefna jarðskjálftamælingar, flugsegulmælingar, þyngdarmælingar og GPS-mælingar.

Bergfræði gosefna

Gjóskan og hraunið í Surtsey er alkalíólivínbasalt, en þessi gerð basalts finnst í Vestmannaeyjum og á Snæfellsnesi. Gjóskan er að mestu brúnt basaltgler sem myndaðist við snöggkælingu heitrar bergkvikunnar í sjó, en hraunið er yfirleitt alkristallað vegna mun hægari kólnunar. Í berginu eru allstórir kristallar af ólivín og plagíóklas.

Framtíð eyjunnar

Surtsey í dag.

Að undanförnu hafa vaknað upp spurningar um framtíð Surtseyjar. Sumir vilja opna Surtsey fyrir ferðamönnum og leyfa ótakmarkaðan aðgang í eyjuna. Embættismenn og Surtseyjarfélagið taka þó fyrir það og segja að um óákveðinn tíma muni eyjan verða notuð til rannsókna og þar af leiðandi takmarkaður aðgangur. Tíminn mun leiða í ljós hlutverk Surtseyjar á komandi tímum. Ennþá eru nýjar plöntur að finnast í eynni og dýra- og fuglalíf er að dafna. Hægt er að segja að lífið í eynni sé farið að líkjast öðrum eyjum Vestmannaeyja þar sem lundinn er farinn að sýna sig í eynni. Sást hann í fyrsta skipti árið 2004 og var hann þá að koma með síli handa ungum sínum. Surtsey gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki varðandi rannsóknir og vitneskju manna á því hvernig líf á landi verður til.

Tenglar


Heimildir

  • Sturla Friðriksson. 1994. Surtsey, lífríki í mótun. Reykjavík: Hið íslenska náttúrufræðifélag – Surtseyjarfélagið.
  • Hallgrímur D. Indriðason (umsjónarmaður vefsíðu). 2005. Vefur Surtseyjarfélagsins. www.surtsey.is.
  • 50. árg. 1963. 15. nóvember. Neðansjávargos SV af Eyjum. Morgunblaðið. bls. 23-24.
  • Sveinn Jakobsson. 2005. Surtsey-jarðfræði. Sótt 22. júní 2005 af: http://www.surtsey.is/pp_isl/jar_1.htm
  • Grein um Surtsey á http://en.wikipedia.org/wiki/Surtsey

Saga:     JarðsagaTyrkjarániðSurtseyjargosiðHeimaeyjargosiðLandnámÚtgerðVerslunHerfylkingin