Sumarnótt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 21:01 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 21:01 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1995 1996 1997
Húmar að kveldi
Nóttin læðist inn
Dúnalogn í dalnum
Rætist draumur minn
Með hnotubrúnum augum
horfir þú til mín
Í öllum mínum æðum
brennur ást til þín
Söngvar óma úr hverju tjaldi
gleðja sérhvert hjarta
Þjóðhátíðarstemmingin
og sumarnóttin bjarta
Haltu mér í örmum þínum
þú undraveröld, Eyjar
Allt of stuttur þessi tími
í faðmi yngismeyjar
Þú strýkur mér um vangann
heit er þín hönd
Atlot þín mig senda
í ævintýralönd
Við mildan bjarma logans
gleymum stað og stund
Enginn betri staður
fyrir ástarfund

Höfundar: Sveinbjörn Grétarsson og Kristján Viðar Haraldsson.