Suðurey

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2005 kl. 08:39 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2005 kl. 08:39 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Mynd:Suðurey-kort.PNG Suðurey liggur um 1km suðvestur af Stórhöfða og er fjórða stærsta úteyjan, um 0.2km². Eyjan er girt háum hömrum að suðurhliðinni undanskilinni, þar sem grasi vaxin brekka nær niður að sjó. Við brekkuna er eini möguleiki á uppgöngu á eyjuna en vegna öldubrots úr suðri er hún stundum erfið. Um miðbik eyjarinnar liggur hryggur, um 161m hár þar sem hann er hæstur. Mikið gróðurlendi þekur mikin hluta eyjunnar. Veiðikofi Suðureyinga var reistur 1951 norðan megin á eyjunni en miklar endurbætur hafa verið gerðar síðan þá. Fé er haft á beit í Suðurey og úteyjamenn veiða þar lunda.