„Stormy Weather“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Setti inn tengil)
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 5: Lína 5:
Myndin var tekin upp víða á Heimaey og var einn aðaltökustaðurinn við [[Skólavegur|Skólaveg]], nánar tiltekið við húsið [[Hlíðarendi|Hlíðarenda]]. Fjöldi Eyjabúa tók þátt í gerð myndarinnar og voru margir sem fengu aukahlutverk í myndinni.
Myndin var tekin upp víða á Heimaey og var einn aðaltökustaðurinn við [[Skólavegur|Skólaveg]], nánar tiltekið við húsið [[Hlíðarendi|Hlíðarenda]]. Fjöldi Eyjabúa tók þátt í gerð myndarinnar og voru margir sem fengu aukahlutverk í myndinni.


[[Flokkur:Menning]]
[[Flokkur:Kvikmyndir og sjónvarp]]

Núverandi breyting frá og með 18. júní 2007 kl. 09:15

Kvikmyndin "Stormy Weather" var frumsýnd árið 2003 og var tekin upp í Frakklandi og í Vestmannaeyjum. Handritshöfundur og leikstjóri er hin íslensk/franska Solveig Anspach en hún er fædd í Vestmannaeyjum. Myndin hlaut góða dóma og hlaut hún tilnefningu á Eddu-verðlaunahátíðinni sem besta myndin. Meðal leikara eru Élodie Bouchez, Didda Jónsdóttir sem hlaut Eddu-verðlaun fyrir besta leik í kvenhlutverki, og Ingvar E. Sigurðsson.

Myndin fjallar um miðaldra íslenska konu sem á við geðræn vandamál að stríða. Hún endar á frönsku geðsjúkrahúsi þar sem sálfræðingur einn reynir að hjálpa henni með óhefðbundnum hætti. Þegar konan er send aftur til Íslands (Vestmannaeyja) þá ákveður sálfræðingurinn að elta hana til að fylgjast með henni á hennar heimaslóð.

Myndin var tekin upp víða á Heimaey og var einn aðaltökustaðurinn við Skólaveg, nánar tiltekið við húsið Hlíðarenda. Fjöldi Eyjabúa tók þátt í gerð myndarinnar og voru margir sem fengu aukahlutverk í myndinni.