Steinar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Tekið úr risinu á Hvoli, þar er húsið Steinar, þá Steinasmiðja fyrir neðan, Þá sést í Haraldarbúð við Heimatorg. Næst er það Heimagata 1 Árnabúð þar fyrir ofan sést í Hotel Berg og svo lengst til vinstri á myndinni er Borg.

Húsið Steinar, upprunalega Elínarhús, var tómthús frá árinu 1637 - austan við Nýja-Kastala. Helgi Jónsson snikkari, bróðir Sveins Jónssonar, reisti húsið.

Einar S. Jóhannsson formaður bjó í húsinu.

Í húsinu bjuggu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973. Hjónin Ármann Guðmundsson og Unnur Eyjólfsdóttir, Guðmundur G. Guðmundsson og kona hans Jónína Ármannsdóttir, sonur þeirra Ármann Óskar. Einnig bjuggu þar Guðrún Jónína Helgadóttir og Þorsteinn Ó. Ármannsson.



Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.