Stefán Árnason (Grund)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. febrúar 2019 kl. 16:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. febrúar 2019 kl. 16:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Stefán Árnason (Grund)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Stefán Árnason frá Dagverðareyri, iðnverkamaður á Akureyri, smiður í Eyjum, síðast í dvöl í Hraunbúðum, fæddist 19. september 1897 og lést 23. maí 1977.
Foreldrar hans voru Sigurður Árni Sigurðsson bóndi á Dagverðareyri, Blómsturvöllum í Kræklingahlíð og víðar, síðar verkamaður á Akureyri, f. 7. október 1874, d. 11. ágúst 1946, og kona hans Sigríður Árnadóttir húsfreyja, f. 24. september 1866, d. 22. janúar 1925.

Stefán var með foreldrum sínum á Bjargi í Lögmannshlíðarsókn 1901, á Blómsturvöllum þar 1910, á Svalbarði í Glæsibæjarhreppi 1920.
Þau Ragnheiður hófu búskap í Glerárþorpi en fluttu síðan á Norðurgötu 15 á Akureyri, þar sem þau ólu upp börn sín.
Þau fluttust til Eyja 1955 með nokkrum börnum sínum.
Stefán vann smíðavinnu í Smið h.f. Þau byggðu við og endurnýjuðu Grund við Kirkjuveg 31 með fjölskyldunni og bjuggu þar til Goss. Þau fluttu aftur til Eyja, bjuggu síðast í Hraunbúðum.
Stefán lést 1977 og Ragnheiður 1980.

I. Kona Stefáns var Ragnheiður Jónsdóttir frá Engimýri í Öxnadal, húsfreyja, f. 24. febrúar 1899, d. 19. júlí 1980.
Þau eignuðust ellefu börn en níu komust upp:
1. Ólafur Stefánsson verkamaður á Akureyri, f. 28. október 1925, d. 1. ágúst 2010.
2. Sigríður Stefánsdóttir húsfreyja, f. 3. desember 1926, d. 3. október 2003.
3. Örn Stefánsson sjómaður, verkstjóri, fiskimatsmaður í Reykjavík, f. 2. júlí 1931, d. 26. mars 2018.
4. Stefán Gunnar Stefánsson sjómaður, f. 27. júlí 1932.
5. Anna Fríða Stefánsdóttir húsfreyja, f. 7. júní 1937, d. 25. maí 2005.
6. Jón Stefánsson sjómaður, múrari, síðar á Akureyri, f. 7. júní 1937, d. 30. janúar 2009.
7. Brynjar Karl Stefánsson á Grund, vélsmiður, vélstjóri, kaupmaður, f. 2. ágúst 1939.
8. Sigurður Árni Stefánsson sjómaður, f. 16. september 1941.
9. Auður Stefánsdóttir húsfreyja á Grund, síðar á Sauðárkróki og Akureyri, f. 9. desember 1945.


Heimildir

  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið. Minning afkomnenda.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.