Stefanía Sigurðardóttir (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Stefanía Sigurðardóttir frá Skuld við Vestmannabraut 40, húsfreyja, verslunarmaður, aðstoðarmaður tannlæknis fæddist þar 2. júní 1921 og lést 18. júlí 2004.
Foreldrar hennar voru Sigurður Pétur Oddsson útgerðarmaður í Skuld og k.h. Ingunn Jónasdóttir húsfreyja.
Foreldrar Sigurðar voru Oddur bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, Krossi í Landeyjum og Heiði á Rangárvöllum, f. 7. sept. 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóv. 1922 á Heiði, Péturs bóndi á Hrútafelli Oddssonar og konu Péturs, Valgerðar húsfreyja, f. 7. jan. 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjarts bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1769, d. 27. júní 1824, Björnssonar. Móðir Sigurðar Péturs og f.k. Odds var Sigríður húsfreyja á Heiði á Rangárvöllum, f. 5. júlí 1840, d. 27. febr. 1885, Árna bónda í Skálakoti, f. 9. ágúst 1798, d. 5. ágúst 1864, Sveinssonar og konu Árna bónda, Guðfinnu húsfreyju, f. 3. okt. 1806, d. 8. maí 1882, Sveins bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1761, d. 17. okt. 1845, Alexanderssonar.
Foreldrar Ingunnar í Skuld voru Jónas bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 20. sept. 1862 í Eystrihól, d. 15. júní 1924, Ingvars bónda á Valstrýtu í Fljótshlíð, Ártúnum og síðar á Eystrihóli í Landeyjum, formanns við Landeyjasand, f. 28. ágúst 1824 á Galtalæk á Landi, d. 12. apríl 1875, drukknaði í lendingu á Skúmsstaðafjöru, Runólfssonar og konu Ingvars, Kristínar húsfreyju, f. 8. júlí 1822, d. 22. des. 1914, Sigurðar bónda í Ártúnum, f. 1791, d. 28. maí 1866 í Ártúnum, Þorsteinssonar.
Móðir Ingunnar og kona (6. jan. 1882) Jónasar var Elín húsfreyja, f. 10. nóvember 1856, d. 12. apríl 1911, Jóns bónda á Oddsstöðum í Eyjum, f. 1808, d. 6. júní 1866, Þorgeirssonar og konu Jóns, Margrétar húsfreyju, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919, Halldórs bónda í Steinum u. Eyjafjöllum, Eiríkssonar.

Börn Ingunnar og Sigurðar:
1. Jónas Sigurðsson, f. 29. marz 1907, d. 4. janúar 1980, skipstjóri, húsvörður Gagnfræðaskólans, kvæntur Guðrúnu Ingvarsdóttur.
2. Þórunn Lovísa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1908, d. 18. júlí 1979 gift Guðna Grímssyni, útgerðarmanni og skipatjóra
3. Oddur Sigurðsson, f 25. maí 1911, d. 19. nóvember 1979, skipstjóri, kvæntur Magneu Lovísu Magnúsdóttur.
4. Elínborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1913, d. 5. nóvember 1993, gift Guðmundi Geir Ólafssyni, verzlunarmanni, búsett á Selfossi.
5. Ólafur Sigurðsson, f. 14. okt. 1915, d. 16. mars 1969, skipstjóri, útgerðarmaður, kvæntur Ástu Kristjánsdóttur Bjartmars, búsett í Vestmannaeyjum.
6. Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2 febr. 1917, d. 4. apríl 1992. Fyrri maður Skafti Þórarinsson. Seinni maður Guðmundur Gíslason.
7. Jónheiður Árný Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. jan. 1919, d. 8. nóvember 1986, gift Jóni Sigurðssyni, verzlunarmanni.
8. Stefanía Sigurðardóttir húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, verslunarmaður, aðstoðarmaður tannlæknis, f. 2. júní 1921, d. 18. júlí 2004, gift Guðna Degi Kristjánssyni bakarameistara, síðar Árna Guðmundi Andréssyni.
9. Jóhanna Júlía Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4 marz 1923, gift Guðmundi Jónssyni, bakarameistara.
10. Sigríður Inga Sigurðardóttir húsfreyja, hótelrekandi í Eyjum, f. 14. apríl 1925, gift Ingólfi Theódórssyni netagerðarmeistara og útgerðarmanni í Eyjum.
11. Jónas Ragnar Sigurðsson, prentari, f. 24. febr. 1928, d. 20. nóvember 2002. Fyrrum sambúðarkona hans Audrey Kathleen Magnússon.

ctr


Fjölskylda Ingunnar og Sigurðar í Skuld 1927.
(Höggið á myndina til að fá nánari skýringu á henni).


ctr


Skuldarfjölskyldan.
Mynd úr Bliki 1961.
Standandi frá vinstri: Stefanía, Ólafur, Sigurbjörg, Oddur, Þórunn Lovísa, Jónas, Elínborg, Jónheiður Árný
Sitjandi frá vinstri: Sigríður Inga, Ingunn Jónasdóttir, Jónas Ragnar, Sigurður Pétur Oddsson, Jóhanna Júlía.

Stefanía var með foreldrum sínum í æsku, farinn 1941.
Hún var verslunarmaður og aðstoðarmaður tannlæknis.
Þau Guðni Dagur giftu sig 1943, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Reykjavík, á Helgafellsbraut 8 í Eyjum 1946, á Suðurgötu á Akranesi 1949, en skildu.
Þau Árni Guðmundur giftu sig 1968, eignuðust ekki börn saman.
Árni lést 2002 og Árný 2004.

I. Maður Stefaníu, (13. mars 1943, skildu), var Guðni Dagur Kristjánsson bakarameistari, f. 20. ágúst 1918 á Kroppsstöðum í Skálavík, N.-Ís., d. 12. nóvember 1972.
Börn þeirra:
1. Jónína Guðnadóttir myndlistakona, f. 16. september 1943 í Reykjavík. Barnsfaðir hennar Harald Gudberg Haraldsson. Maður hennar Kristján Henriksson Linnet.
2. Sigurður Pétur Guðnason rafvélavirkjameistari, framhaldsskólakennari, f. 3. maí 1946 í Eyjum. Kona hans Edda Ingvarsdóttir.
3. Kristján Pétur Guðnason ljósmyndari, f. 21. október 1949 á Akranesi. Kona hans Sigríður Árnadóttir.

II. Maður Stefaníu, (2. ágúst 1968), var Árni Guðmundur Andrésson kennari á Akranesi, síðar skrifstofustjóri í Reykjavík, síðar gæslumaður, f. 18. mars 1927 á Skagaströnd, d. 3. ágúst 2002. Foreldrar hans voru Andrés Guðjónsson kennari og bóndi, síðar kaupmaður, f. 15. febrúar 1893 á Harastöðum á Skagaströnd, d. 5. október 1968, og kona hans Sigurborg Hallbjarnardóttir húsfreyja, ljósmóðir á Skagaströnd, f. 24. ágúst 1893 í Flatey á Breiðafirði, d. 3. desember 1983. Þau voru barnlaus saman.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 15. ágúst 2002. Minning Árna Guðmundar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.