Staður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. október 2017 kl. 13:34 eftir Kristjanp (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. október 2017 kl. 13:34 eftir Kristjanp (spjall | framlög) (Bætt við mynd frá 1973.)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Staður stóð við Helgafellsbraut 10.

Helgafellsbraut 10

Stað byggðu árið 1924 hjónin Kristján Egilsson, fæddur 1884 í Miðey, Voðmúlastaðasókn, Rang. og Sigurbjörg Sigurðardóttir, fædd 1895 í Kirkjulandshjáleigu, Landeyjum. Þau bjuggu þar allan sinn búskap. Börn þeirra: Bernótus, Símon, Egill, Guðrún og Emma. Systkinin fæddust öll í húsinu.

Hjónin Pálmi Pétursson og Birna Björgvinsdóttir og börn þeirra Björgvin, Karlotta og Guðrún Sólveig bjuggu í Stað þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973.

Staður var rifinn 1974.



Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972
  • Kristján Pétursson.
  • Húsin í hrauninu haust 2012.