Sólveig Sigurðardóttir (Hrafnabjörgum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. desember 2018 kl. 14:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. desember 2018 kl. 14:13 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Solveig Sigurðardóttir.

Solveig Sigurðardóttir húsfreyja á Hrafnabjörgum fæddist 19. desember 1923 og lést 7. desember 1994.
Foreldrar hennar voru Sigurður Bjarnason sjómaður, f. 25. ágúst 1895, d. 13. ágúst 1981 og sambýliskona hans Þorbjörg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 22. febrúar 1895, d. 9. júní 1948.

Börn Þorbjargar og Sigurðar voru:
1. Andvana stúlka, f. 26. desember 1917.
2. Anna Ester Sigurðardóttir, f. 18. nóvember 1919, d. 19. janúar 1980.
3. Sigurður Hilmar Sigurðsson, f. 26. apríl 1921, d. 27. september 2014.
4. Solveig Sigurðardóttir, f. 19. desember 1923, d. 7. desember 1994.
5. Engilbert Ottó Sigurðsson, f. 14. maí 1931.

Solveig ólst upp með fjölskyldu sinni. Hún var vinnukona hjá Katrínu Sigurðardóttur og Benóný Friðrikssyni í Stafnsnesi (Heiðarvegi 31) 1940.
Solveig vr á heimili foreldra sinna 1942, er hún eignaðist fyrsta barn sitt, andvana stúlku. Þau Óskar voru í Heiðardal við fæðingu Erlu 1943 og við fæðingu Sigurbjargar 1945. í lok ársins bjuggu þau í Franska spítalanum (Kirkjuvegi 20), voru komin á Hrafnabjörg við fæðingu Þórhildar 1947 og fæðingu Ólafs 1948 . Þau bjuggu þar meðan öll börnin voru heima, en fluttust síðan á Foldahraun og þá á Faxastíg, en að lokum á Brekastíg 23.
Óskar lést 1982. Solveig varð fyrir áfalli og dvaldi á Sjúkrahúsinu síðasta ár sitt. Hún lést 1994.

Maður Solveigar, (24. desember 1942), var Óskar Þórarinsson húsasmíðameistari, vélstjóri, f. 28, júní 1910 á Norðfirði, d. 17. maí 1982.
Börn þeirra voru.
1. Andvana fædd stúlka 28. júlí 1942.
2. Erla Óskarsdóttir húsfreyja á Akranesi, síðar verslunarmaður, sjúkrahússtarfsmaður í Reykjavík, f. 22. desember 1943. Maður hennar er Adólf Ásgrímsson rafvirkjameistari, rafmagnstæknifræðingur, f. 12. júní 1944.
3. Sigurbjörg Óskarsdóttir húsfreyja, f. 20. júní 1945. Maður hennar er [[Sigurður Óskarsson (Hvassafelli)|Sigurður Óskarsson frá Hvassafelli, smiður, kafari, f. 24. maí 1944.
4. Þórhildur Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. mars 1947. Maður hennar var Jónas Kristinn Bergsteinsson frá Múla rafverktaki, f. 24. ágúst 1948.
5. Ólafur Óskarsson rennismíðameistari, bifreiðastjóri, f. 23. október 1948. Kona hans er Jóna Jónsdóttir húsfreyja, læknafulltrúi frá Gerði, f. 5. maí 1950.
6. Óskar Óskarsson rafvirki, svæðissölustjóri hjá Marel, f. 18. september 1950. Kona hans var Bergþóra Jónsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 24. ágúst 1953, d. 13. ágúst 2012.
7. Þráinn Óskarsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 1. nóvember 1953. Kona hans er Guðný Júlíana Garðarsdóttir húsfreyja, sölumaður, f. 15. desember 1959.
8. Dagmar Óskarsdóttir húsfreyja í Kópavogi, sjúkraliði, f. 3. júní 1962. Sambýlismaður hennar er Jón Berg Torfason þroskaþjálfi, f. 14. mars 1971.
9. Hafdís Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. desember 1963. Maður hennar var Sigurjón Kristinsson læknir, f. 16. mars 1964. Sambýlismaður Hafdísar er Hermann Smárason, f. 12. mars 1959.

II. Sambýlismaður Solveigar var Páll Guðmundsson húsasmíðameistari, f. 22. ágúst 1927, d. 16. janúar 1995.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.