Solveig Magnúsdóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. desember 2019 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. desember 2019 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Solveig Jónína Magnúsdóttir.

Sólveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja í Háagarði og Dölum fæddist 2. ágúst 1879 í Fagradal í Mýrdal og lést 21. apríl 1955.
Foreldrar hennar voru Magnús Björnsson bóndi þar, f. 25. apríl 1841 í Rofunum í Mýrdal, d. 6. nóvember 1904 í Fagradal þar, og fyrri kona hans Solveig Sigurðardóttir húsfreyja, f. 24. febrúar 1847 á Norður-Fossi í Mýrdal, d. 14. maí 1895 í Fagradal.

Solveig var með foreldrum sínum í Fagradal til ársins 1894.
Hún var vinnukona í Kerlingardal 1894-1895, var með föður sínum í Fagradal 1895-1899
Þau Jón giftu sig 1899, voru húsfólk í Skálmarbæjarhraunum í Álftaveri 1899-1901, voru bændur í Skálmarbæ 1901-1902, húsfólk í Skálmarbæjarhraunum 1902-1904.
Þau voru bændur í Holti í Álftaveri 1904-1919. Jörðin skemmdist í Kötluhlaupinu 1918.
Á búskaparárum sínum eystra eignuðust þau 13 börn, sem komust upp. Nokkur þeirra voru fóstruð annarsstaðar um skeið.
Þau fluttust frá Holti til Eyja 1919 með 10 börn sín og Sigríði Jónsdóttur móður Jóns. Þau eignuðust Karl í lok árs og Matthildi 1921. Sverrir Magnús kom til Eyja 1920, Lilja 1929 og Rannveig 1930.
Þau bjuggu í Háagarði, en síðan í Dölum, voru komin þangað 1930.




ctr


Solveig Magnúsdóttir og Jón Sverrisson.


ctr


Solveig og Jón með 12 börnum sínum.


Maður Solveigar Jónínu, (15. september 1899), var Jón Sverrisson yfirfiskimatsmaður, f. 23. janúar 1871, d. 5. mars 1968.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Jónsson verslunarmaður, f. 24. júlí 1898, d. 22. apríl 1962.
2. Sverrir Magnús Jónsson sjómaður, f. 25. júní 1900, drukknaði af Minervu 24. janúar 1927.
3. Elías Theodór Jónsson framkvæmdastjóri, f. 11. júní 1901, d. 28. júlí 1959.
4. Einar Jónsson skipstjóri, f. 16. desmber 1902, drukknaði af Mínervu 24. janúar 1927.
5. Solveig Magnea Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1. nóvember 1904, d. 10. desember 1984.
6. Sigurjón Jónsson skipstjóri, síðar verkamaður, f. 18. janúar 1906, d. 5. október 1979.
7. Lilja Jónsdóttir hárgreiðslukona, f. 5. maí 1907, d. 28. desember 2006.
8. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1908, d. 24. apríl 1993.
9. Aðalheiður Svanhvít Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. janúar 1910, d. 26. október 1946.
10. Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.
11. Kjartan Jónsson lyfjafræðingur, f. 1. maí 1914, d. 5. júní 2004.
12. Svanhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 11. mars 2006.
13. Rannveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 23. apríl 2002.
14. Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður, gangavörður, f. 11. desember 1919 í Eyjum, d. 1. maí 2011.
15. Matthildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. október 1921 í Eyjum, d. 20. febrúar 2002.

Myndir


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Solveig Theodórsdóttir.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.