Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2010/Sæheimar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. september 2018 kl. 13:21 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. september 2018 kl. 13:21 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: Sæheimar Náttúrugripa- og fiskasfn Vestmannaeyja iska- og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja heíúr verið starfrækt frá árinu 1964. Öll þessi ár hafa sjómenn í Vestmannaeyj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sæheimar Náttúrugripa- og fiskasfn Vestmannaeyja iska- og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja heíúr verið starfrækt frá árinu 1964. Öll þessi ár hafa sjómenn í Vestmannaeyjum verið mjög dugleg- ir við að sjá safninu fyrir fiskum, krabbadýrum og ýmsum sjávarlífverum. Oft á tíðum er um að ræða sjaldgæfar fiskitegundir eða furðuskepnur úr brött- um köntum landgrunnsins. Fyrir vikið hefur safnið átt greiða leið í kastljósið og er það vel þekkt meðal landsmanna. Um áramótin 2010 tók Þekkingarsetur Vestmanna- eyja við rekstri safnsins og hafa sjómenn haldið uppteknum sið og komið færandi hendi til safnsins. Til þess að auðvelda flutning sjávardýra frá miðum á safnið fjárfesti Þekkingarsetrið í tveimur 800 lítra kömm með loftdælubúnaði. Góð reynsla er nú þeg- ar kominn af körunum og hafa sjómenn komið með hverja sendinguna á fætur annarri til okkar. Þessi kör koma sér mjög vel ef flutningurinn tekur langan tíma en fyrir styttri tíma dugar oft að nota gott kar og sjósmúlinn. I janúar var annað karið um borð í togskipinu Brynjólfi VE 3 og komu þeir með hrognkelsi, tinda- bikkjur, blágómu, hlýra, rauðsprettur, skötuseli og dílamjóra. Dílamjórinn er nokkuð sjaldgæf tegund og hefúr aðeins tvisvar áður verið komið með þessa tegund á safnið. Vikublaðið Fréttir í Vestmanna- eyjum var með umfjöllun um dílamjórann auk þess sem Gísli Óskarsson fréttamaður myndaði hann og fjallaði um hann í fréttum Stöðvar 2. Nokkru síð- ar kom áhöfnin á togaranum Jóni Vídalín VE 82 með stóran kolkrabba sem einnig rataði í kastljós fjölmiðla og hefur varla komið sá gestur á safnið, sem ekki hefur sérstaklega viljað skoða kolkrabb- ann, sem nú hefur fengið nafnið Vídalín. Áhöfnin á dragnótabátnum Portlandi VE 97 hef- ur einnig verið dugleg að koma með fiska til okkar á safnið. Meðal annars hafa þeir fært safninu kol- krabba, ósalúrur, tindabikkjur, hrognkelsi, urrara, trjónukrabba og sexstrending. Svo virðist sem einn af kolkröbbunum frá Portlandinu hafi síðar hrygnt í búrum safnsins því agnarsmátt kolkrabbaungviði birtist skyndilega í búrinu.

í lok loðnuvertíðarinnar var annað karið sett um borð í loðnuskipið Sighvat Bjamason VE 81. Komu þeir með um 400 loðnur til okkar og mynduðu þær litla torfu í einu búranna. Þegar við mættum til vinnu á morgnana og kveiktum ljósin í búrunum tóku loðnurnar til við að para sig og hrygna í sand- inn á botni búrsins. Sighvatur Jónsson, fréttamaður hjá RUV, náði myndum af hrygningaratferlinu og fjallaði um það í fréttatíma Ríkissjónvarpsins. Við tókum hluta af sandinum með hrognunum í burtu til að gera tilraunir með að klekja þau út og fylgjast með þroskaferli hrogna og seiða. Á sumardaginn fyrsta kom áhöfn togskips- ins Bergeyjar VE 544 færandi hendi með krabba sem kallast langfótungur og veiddist rétt austan við Vestmannaeyjar. Ekki aðeins koma sjómenn með lifandi fiska og önnur sjávardýr til okkar heldur einnig sjaldgæfar tegundir sem eru stoppaðar upp og hafðar til sýnis í Náttúrugripasafninu. Vestmannaeyjabær hefur tilkynnt áform um að flytja og stækka Fiska- og náttúrugripasafnið á næstu árum. Er áformað að sýna ýmsar tegundir Norður-Atlantshafsins í myndarlegum körum með nýjustu tækni. Safnið hefúr fengið nýtt nafn eða Sæ- heimar, aquarium, og eignast nýtt vörumerki. Er það ósk okkar að hið góða samstarf við sjómenn haldi áfram í nýju safni. Sjómenn, til hamingju með dag- inn.

Nafn? Jens Kristinn Elíasson.

Hvar ertu að róa? Dala Rafni. Hvaða stöðu gegnir þú? Háseti/ vélstjóri. Hvar og hvenær hófst sjó- mannsferillinn? 15 ára gamall á Heimaey VE 1. Varstu sjóveikur? Já, fyrst. Hver er eftirminnilegasti sjó- maðurinn sem þú hefúr róið með? Brynjar Smári Unnarsson. Hver er ,,sjómaður Islands númer I “? Auðunn Jörgens. Er rétt að afnema sjómannaafslátt- inn? NEI. Ertu á Facebook eða með heimasíðu? Já ég er með Facebook. Er ekki ógeðslega erfitt að vera sjó- maður? Nei, nei, ekkert svo. Hver er munurinn á báti og skipi? Er munur á því? Má nota þokulúður þegar það er ekki þoka? Já. Hverjir verða heimsmeistarar í knattspyrnu í sumar? England. Kanntu einhvern góðan brandara? Kem ekki neinum fyrir mig í augna- blikinu. Eitthvað að lokum? Eg vil óska öllum sjómönnum til hamingju með daginn. Nafn? Guðlaugur Ólafsson. Hvarertu að róa? Herjólfi. Hvaða stöðu gegnir þú? Stýrimaður ogverðandi skipstjóri. Hvar og hvenœr hófst sjómannsfer- illinn? Gullberg VE árið 1994. Varstu sjóveikur? Já, og finn ennþá fyrir því. Hver er eftirminnilegasti sjómað- urinn sem þú hefur róið með? Þeir eru svo margir skrítnir að það er ekki hægt að gera upp á milli þeirra. Hver er ,,sjómaður Islands númer I “? Er það nokkur spurning? Erréttað afnema sjómannaafsláttinn? NEI. Ertu á Facebook eða með heimasíðu? Er á Facebook. Er ekki ógeðslega erfitt að vera sjó- maður? Það getur verið það. Hver er munurinn á báti og skipi? Stærðin. Má nota þokuluður þegar það er ekki þoka? Já. Hverjir verða heimsmeistarar í knattspyrnu í sumar? Er heims- meistaramót í sumar? Hafði ekki heyrt um það. Kanntu einhvern góðan brand- ara? Nei, ég er ekki þessi Skari Skrípó týpa. Eitthvað að lokum? Til hamingju með daginn, sjómenn íslands.