Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Starf vélstjórnarbrautar FÍV 2008-2009

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. september 2018 kl. 14:02 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. september 2018 kl. 14:02 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: <big><center>'''GÍSLI SIG. EIRÍKSSON SKRIFAR'''</center></big><br> <big><big><center>'''Starf vélstjórnarbrautar FÍV 2008-2009'''</center></big></big><br> Þann 4. jan. 2008 var...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
GÍSLI SIG. EIRÍKSSON SKRIFAR


Starf vélstjórnarbrautar FÍV 2008-2009


Þann 4. jan. 2008 var vorönn Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum sett. Viö nám í ýmsum vél- stjórnargreinum til vélavarðarréttinda voru 15 nem- endur og 15 nemendur stunduðu nám á öðru stigi, þá voru nokkrir nemendur úr 10. bekk grunnskólans í valáfanga í málmsmíði. Námi til vélavarðarréttinda luku fjórir og einn útskrifaðist úr öðru stigi. Venja hefur verið að veita viðurkenningu einu sinni á ári fyrir góðan námsárangur við útskrift úr öðru stigi. Geisli raftækjavinnustofa hefur gefið vandaðan fjöl- sviðsmæli fyrirgóðan árangur í rafmagnsfræðigrein- um, Skipalyftan hefur gefiðið vandað skífmál fyrir góðan árangur í smíðagreinum og Vélstjórafélag Vestmannaeyja veitir þeim nemanda sem nær best- um árangri í vélstjórnargreinum vandaö áletrað úr. Viljum við færa öllum þessum aðilum þakkir fyrir góðan stuðning við skólann og nemendur. Að þessu sinni hlaut Eyþór Björgvinsson allar viðurkenning- arnar, en hann útskrifaðist á haustönninni 2007. Haustönnin 2008 hófst svo að loknum sumarleyf- um þann 22. ágúst með hefðbundnum hætti. Ný að- alnámsskrá fyrir vélstjórnarnám tók gildi í júlí síð- astliðnum, með henni verða nokkrar breytingar á náminu og það flokkað með öðrum hætti. Stigskipt- ingin í náminu er lögð af og í stað fyrsta stigs kemur nám til A réttinda, 38 eininga nám sem gefur mögu- leika á réttindum að 750 kW og í stað annars stigs er komið vélstjórnarnám til B réttinda 126 eininga nám sem gefur möguleika á réttindum að 1500 kW sem yfirvélstjóri og undirvélstjóri á skipum með allt að 3000 kW vélarafl. Á haustönninni voru 10 nem- endur í byrjunaráföngum vélstjórnar, þar á meðal nemendur sem eru í stýrimannanámi við skólann og þurfa að taka vélstjórnar- og rafmagnsfræðiáfanga. A öðru stigi voru 12 nemendur sem allir luku áföng-

um til vélstjórnarréttinda, í þeim hópi eru m.a. starf- andi sjómenn sem eru að afla sér aukinna réttinda, þeir mæta vel þegar þeir eru í landlegum eða í fríum. Hluti námsins hjá þeim fer fram í gegnum námsskjá sem er eins konar íjarnámsbúnaður þar sem þeir sækja námsgögn og skila verkefnum. Haustönninni lauk svo þann 20. des síðastliðinn Vorönnin 2009 var svo sett þann 5. janúar og hófst kennsla eftir hraðtöflu 6. janúar. Á vélstjórnarbraut eru þrettán nemendur, misjafnlega Iangt komnir í náminu í hinum ýmsu áföngum. Gert er ráð fyr- ir að fimm þeirra útskrifist úr II stigi eftir gamla kerfinu nú í maí og hafa þeir allir ákveðið að halda áfram í náminu og fara í nýja B námið til að afla sér aukinna réttinda. Einnig eru á vorönninni fimm nemendur í undanfaranámi fyrir rafvirkjun og þrír í grunndeild málmiðna. Þá eru nemendur úr grunn- skólanum í valáfanga í málmsmíði og er þetta mesti fjöldi þeirra sem verið hefur enda varð að skipta þeim í tvo hópa. I marsmánuði voru haldnir opn- ir dagar, þá sameinuðust nemendur af hinum ýmsu brautum skólans og smíðuðu verðlaunagripi fyrir árshátíðina. Nú á breyttum tímum í þjóðfélaginu er vert að benda ungu fólki og þeim sem eldri eru á möguleikana sem vélstjórnar- og iðnnám gefur til íjölbreyttari atvinnumöguleika, atvinnuréttinda og tryggari framtíðarkjara. Skólinn hefur í gegnum tíð- ina notið velvildar ýmissa útgerðarmanna og annarra sem hafa gefið honum ýmis tæki og tól sem nýtast við kennsluna, viljum við þakka þeim þann hlýhug sem þeir sýna með þessu. Nemendur og starfsmenn skólans vilja færa sjómönnum góðar óskir um gott brautargengi í framtíðinni og óska þeim til hamingju með daginn.  9 Nqfn: Sigmar Þröstur Oskarsson Fœðingardagur og ár: 24. 12. 1961 9 Hvar ertu fœddur: I Eyjum, nánar tiltekið í Ráðhúsinu. 9 Hjúskaparstaða: Eg bý með Vilborgu Friðriksdóttur og eig- um við fjögur börn. Hvenœr útskrifaðistu úrskól- anum (fyrir stýrimenn og vél- 9 stjóra): A síðustu öld Hvað er misvísun (fyrir stýrimenn): Þegar það er ekki sagt satt í stöðinni. Hvar ertu að róa: Á Frár VE 78. Einhver eftirminnileg atvik til sjós: Allir túrar jafn skemmtilegir. Eftirminnilegasta persóna sem þú hefur róið með:

Það eru þeir sjómenn sem sögöu manni til og leiðbeindu. Hefurðu orðið sjóveikur: Já, en mjög sjaldan. Fylgjandi eða andvígur núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi: Erekki í pólitík. Uppáhaldslið í Ensku knattspyrn- unni: Liverpool. 66°N eða eitthvað annað: Oftast. Ertu á facebook: Já, en hef lítinn tíma og hunsa marga vegna þess. Hvernig list þér á Bakkafjöru- höfin: Vel í blíðu. Hvað viltufá á pulsuna: Ekkert. Númer hvað eru stigvélin þín: 45. Fylgjandi inngöngu íslands í ESB: Já, en ekki Vestmannaeyjar. Uppáhaldsvefsiða: Eyja síður. Eitthvað að lokum: Munum eftir öryggismál- unum.


Kynnins á sjómonnum Najh: Guðmundur Huginn Guð- mundsson Fœðingardagur og ár: 29 maí 1960 9 Hvar ertu fceddur: I Vestmanna- eyjum. Húskaparstaða: Giftur Þórunni Gísladóttur. Hvenœr útskrifaðistu úrskól- anum (fyrir stýrimenn og vél- stjóra): Ég útskrifaðist árið 1980 Hvað er misvisun (fyrir stýrimenn): Það er eitthvað í stefnum. 9 Hvar hófst sjómannsferillinn: l Vest- mannaeyjum. 9 Hvar ertu að róa: A Hugin VE 55. Einhver eftirminnileg atvik til sjós: Já mörg. bæði góð og slæm. Eftirminnilegasta persóna sem þú hefur róið með: Nokkrir góðir. Hefurðu orðið sjóveikur: Já, einu sinni sem smápeyi. Fylgjandi eða andvigur núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi: Bæði og. Uppáhaldslið i Ensku knatt- spyrnunni: Arsenal. 66°N eða eitthvað annað: Eitt- hvað suðlægara. Erti/ á facebook? Nei. Hvernig list þér á Bakkafjöru- höfn: llla. Hvað viltu fá á pulsuna: Allt. Númer hvað eru stigvélin þín: 45 9 Fylgjandi inngöngu Islands í ESB: Nei. Uppáhaldsvefsíða: http://www.liuginn. is og http://www.123.is/tobbivilla / 9 Eitthvað