Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2008/Aflaklóin

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. nóvember 2019 kl. 12:30 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. nóvember 2019 kl. 12:30 eftir Valli (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Aflaklóin


Sigurjón Óskarsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Þórunni Sveinsdóttur VE. Margfaldur aflakóngur

Frá Eyjum hann alla tíð reri,
aflann úr hafinu dró.
Á ufsann og ýsuna sneri,
afgreiddi þorskinn og hló.
Sjómaður var hann með sóma
og setti í dugnaði met.
Þess vegna læt ég hann ljóma
er líf hans í kvæðið ég set.

Á Þórunni Sigurjón sigldi.
Saltið í kinnarnar beit.
Fiskilán æ honum fylgdi
og farsæld á gæfunnar reit.
Vaskur í aðgerð oft óð hann.
Þá vel upp á ermar var brett.
Við stýrið í brúnni svo stóð hann
er stefnan til Eyja var sett.

Lýður Ægisson höfundur ljóðsins. Hann hefur líka samið lag við ljóðið

Enn eru sagðar hér sögur
um sægarp sem kunni sitt fag.
Hann sigldi um annes og ögur.
Við öldurnar fór hann í slag.
Frá Eyjum hann alla tíð reri,
aflann úr hafinu dró.
Á ufsann og ýsuna sneri,
Afgreiddi þorskinn og hló.

Lýður Ægisson